157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[22:48]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir prýðisgott svar. Ég ætla að halda áfram í landbúnaði og koma inn á það sem snýr að nýliðun. Það er komið ágætlega inn á það í kaflanum um landbúnaðarmál sem snýr að nýliðun og ég geri mér grein fyrir því að það er frekar snúið. Þar þurfa margir að koma að og það þarf að koma til fjármagn. Vissulega erum við að tala um áætlun hérna sem byggir á því að árið 2027 verði fjárlög hallalaus. En þrátt fyrir það þá skynja ég á orðum ráðherra varðandi endurskoðun á búvörusamningum og fleira og sömuleiðis varðandi þær ógnir sem steðja að matvælaframleiðslu um hugsanlega hækkun á áburðarverði — hvort ráðherra sé kominn með einhvern verðmiða á hvað þarf til þess að við getum liðkað til fyrir nýliðun. Það eru vissulega margar leiðir. Við getum nýtt okkur Byggðastofnun í því samhengi og alls konar hugmyndir sem hafa komið fram varðandi það hvernig við getum gert þetta. Er ráðuneytið komið með einhvern ákveðinn verðmiða á — ég geri mér grein fyrir því að það er ekki inni í þeirri áætlun sem við erum að ræða hérna en þetta er mjög mikilvægt atriði, sérstaklega í ljósi þess að við erum jú að tala um áætlun. Ég tel að hún komi svo sem ekki til með að halda þegar fram í sækir en það er samt mjög mikilvægt að hæstv. ráðherra sé með áætlun alla vega varðandi þau orð sem hér standa um þann kafla (Forseti hringir.) sem snýr að nýliðun og fleiri þáttum sem snúa að landbúnaði.