157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[22:57]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Hvað sem því líður er hér verið að svíkja gefin kosningaloforð og svíkja gefnar yfirlýsingar um hvað ríkisstjórnin ætlaði ekki að gera, hún ætlaði ekki að hækka virðisaukaskatt á ferðaþjónustuna, ætlaði ekki að hækka vaskinn og það er verið að hækka vaskinn núna. Ég velti því fyrir mér, af því að þetta kallast skattstyrkur, að nú greiðir sá sem hér stendur og hæstv. ráðherra og allir sem hér eru inni hátekjuskatt. Eigum við þá að líta svo á að þeir sem borga skatt í lægsta skattþrepi eða miðþrepi séu að fá skattstyrk af því að þeir eru ekki að borga hátekjuskatt? (Gripið fram í.) Ég velti því nú fyrir mér.

Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra um tvennt, í fyrsta lagi: Hvað verður bankaskatturinn hár? Framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar skrifaði grein og lýsti því yfir að þetta yrðu 6 milljarðar. Hæstv. fjármálaráðherra kom snögglega og leiðrétti það og enginn veit þetta. Hér erum við að tala um fyrirtæki sem eru á hlutabréfamarkaði, íslenska banka. Hér er verið að boða einhvers konar skatta. Hér kemur áhrifamaður í pólitíkinni á Íslandi og lýsir því yfir að þetta verði 6 milljarðar. Flumbrugangurinn byrjar og þetta er dregið til baka og nú veit enginn hvort þetta er 1 milljarður eða 10 milljarðar eða hvað það er. Mig langar því að spyrja hæstv. ráðherra hvort hún viti hvað bankaskatturinn verður hár.

Síðan langar mig að spyrja hæstv. ráðherra varðandi það að fara með 35% endurgreiðslu á byggingarstað, vegna íbúðarhúsnæðis, og fara með þá niður í 0. Á sama tíma er verið að setja 7,5 milljarða í byggingu á félagslegu íbúðarhúsnæði, niðurgreiddum leiguíbúðum. Er ekki hæstv. ráðherra frekar sammála því að við eigum að setja meiri pening í það að endurgreiða vask á byggingarstað og byggja íbúðarhúsnæði þar sem fólk getur keypt sitt eigið húsnæði í staðinn fyrir að moka peningum skattgreiðenda í leigufélög, óhagnaðardrifin leigufélög eða hvað sem þetta heitir, til að byggja félagslegt húsnæði og fjölga leiguliðum í staðinn fyrir að reyna að lækka kostnað við byggingu á íbúðum og gera fólki kleift að kaupa sitt eigið húsnæði?