157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[23:00]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V):

Herra forseti. Ég veit eiginlega ekki hvert ég á að snúa mér eftir þessa ræðu og spurningar hv. þingmanns. Ég er vissulega með býsna víðfeðmt ráðuneyti og tel mig nú hafa nóg að gera en mér heyrist hv. þingmaður vilja dæla verkefnum annarra ráðuneyta og ráðherra á …(Gripið fram í: Í staðinn fyrir strandveiðar. ) Já, þið meinið það, að ég skuldaði þetta. En að öllu gamni slepptu þá er þetta nú kannski orðræða sem ég ætla ekki að fara út í hér af því að þá erum við bara komin í pólitísk skoðanaskipti um málefnasvið sem heyrir ekki undir mig. (Gripið fram í.) Ég mun koma þessu til skila, þessari spurningu, en ég ætla líka að taka þessu sem vísbendingu um að annað gangi bara býsna vel fyrst hv. þingmaður vildi ekki spyrja frekar um það sem er á málefnasviði atvinnuvegaráðuneytisins beinlínis og (Gripið fram í.) ég bara hlakka til frekara samtals.