157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[23:06]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið þó að það hafi kannski ekki að miklu leyti verið við spurningunum sem ég lagði fram. En þá langar mig til að spyrja tveggja mjög afmarkaðra spurninga, endurtaka spurninguna um ferðaþjónustuna, burt séð frá því hvort það er skoðun ráðherrans, ríkisstjórnarinnar, OECD eða hvers sem er: Hefur komið til skoðunar að fleiri hlutar ferðaþjónustunnar færist úr 11% virðisaukaþrepi upp í 24% virðisaukaþrepið, þ.e. fleiri hlutar ferðaþjónustunnar en baðlónin sem nú er lagt til að færist til?

Hin spurningin. Af því að bankastarfsemi og rekstur fyrirtækja eru svo nátengd þá langar mig til að spyrja hæstv. ráðherra hvort ráðherrann telji arðsemi íslenskra banka, með tilliti til eigin fjár, vera of háa, mátulega, sem sagt eðlilega, eða lága?