157. löggjafarþing — 94. fundur, 15. apr. 2026.
mannabreytingar í nefndum.
Forseti vill tilkynna að borist hefur erindi frá þingflokki Flokks fólksins um mannaskipti í nefndum, sbr. 1. mgr. 16. gr. þingskapa, þannig að Guðmundur Ingi Kristinsson taki sæti sem aðalmaður í umhverfis- og samgöngunefnd í stað Jónínu Bjarkar Óskarsdóttur, en Jónína Björk Óskarsdóttir verði varamaður í sömu nefnd í stað Guðmundar Inga Kristinssonar. Þessar mannabreytingar skoðast samþykktar án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.