157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[15:48]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir hennar svar við spurningum mínum. Hér ætla ég aðeins að breyta um kúrs, ekki mikið þó því að hæstv. ráðherra hefur talað nú nýlega um STEM-greinar, stærðfræði, tækni, verkfræði og vísindi sem eru í raun grunnur nýsköpunar og framfara í samfélaginu. Við vitum hver staðan er hér á landi: 2% nemenda á Íslandi eru með afburðafærni í náttúruvísindum, 2% nemenda, sem er fimm sinnum lægra en í nágrannalöndum okkar. Hæstv. ráðherra gerir sér greinilega grein fyrir því að þetta er grunnurinn að velsæld á Íslandi, að geta búið til verðmæti úr einhverju sem er kannski eins og þorskroð sem er orðið að sáraumbúðum. Þetta skiptir miklu máli. Það sem mér finnst aðeins vanta, hæstv. ráðherra hefur kannski ekki haft tíma til þess, en í fjármálaáætluninni er boðuð áhersla á STEM-greinar í framhaldsskóla. Við verðum sem sagt að vera með grunninn á hreinu áður en við förum að byggja þakíbúðina eða miðhæðirnar í blokkinni. Það er mikill skortur á náttúrufræðikennurum í grunnskólunum og hvað þá í leikskólunum. Og þegar staðan er þessi, að 2% nemenda útskrifast með afburðafærni í náttúruvísindum úr tíu ára námi í grunnskóla, þá legg ég til að hæstv. ráðherra skoði þetta vandlega og spyr hann hvort hann sé til í það að leggja vinnu í að bæði í leik- og grunnskóla verði mikil áhersla lögð á þessar greinar í skólunum, sem eru þá stærðfræði og náttúruvísindi og að sjálfsögðu íslenska, þannig að þær greinar fái mögulega að skína skærar en aðrar greinar sem hafa kannski verið að troða sér inn í námskrá grunnskólanna á síðustu árum og hafa í raun ekki skilað nokkrum sköpuðum hlut.