157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[15:50]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Enn og aftur þakka ég hv. þingmanni fyrir gott innlegg hans sem hittir mig náttúrlega beint í hjartastað. Þegar við erum að tala um raungreinarnar þá er það eitt af aðalatriðunum í nýrri atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar að leggja sérstaka áherslu á þær greinar því að margs konar áskoranir blasa við, það liggur fyrir. Hátt hlutfall ungmenna, eins og hv. þingmaður réttilega bendir á, afburðanemendur á þessu sviði — ástandið er algerlega óviðunandi ef við ætlum að bera okkur saman við löndin í kringum okkur. Það er líka dapurt að vita að stór hluti, allt of stór hluti, ungmenna hér lýkur skólagöngu einungis með grunnskólaprófi. Það er fullkomlega óásættanleg staða sem samfélagið þarf að bregðast við. Og hlutfall nemenda í verk- og starfsnámi er eitt það lægsta í Evrópu.

Mig langar líka að nefna annað sem vekur athygli og það er þetta svokallaða eina leyfisbréf sem virðist gilda frá leikskóla og upp í framhaldsskóla, eitt leyfisbréf fyrir allar greinarnar. Þú getur farið sem leikskólakennari upp í grunnskóla og jafnvel upp í framhaldsskóla. Það liggur náttúrlega alveg fyrir að einhvers staðar þarna — af því að við sjáum að það hallar undan fæti, við erum frekar að dragast aftur úr þegar kemur að raunvísindum. Það liggur fyrir að við verðum að skoða það með virkilegum radaraugum hvaða áhrif þetta eina leyfisbréf hefur haft á framvindu náms til þessa. Verkefnin eru ærin og verkefnin eru mörg. En það er eitt verkefni sem trónir á toppnum og það er verkefnið um framtíð og farsæld barnanna okkar. Og ég efast ekki um að hver einasti kjörinn fulltrúi í ríkisstjórn sem og á Alþingi Íslendinga tekur heils hugar undir það.