157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[15:54]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir afar mikilvæga umræðu. Íslenska framhaldsskólakerfið stendur frammi fyrir margvíslegum áskorunum. Við sjáum að nær 99% allra ungmenna innritast í framhaldsskóla og árgangurinn sem kemur í næsta haust er óvenjufjölmennur. Það eitt og sér kallar á aukinn undirbúning og sterkari stuðning við skólana. Þá eru um 25% nemenda með erlendan bakgrunn. Það krefst markvissari stoðþjónustu þannig að allir nemendur fái raunverulegt tækifæri til að ná árangri. Við horfum líka upp á að sumir skólar búa við halla, að víða vantar fleiri og betri námsgögn og að ör þróun gervigreindar kallar á nýja hugsun í kennslu, námsmati og skipulagi skólastarfs. Þá eru líka áskoranir tengdar reiknilíkaninu, miklum fjölda námsbrauta og auknu fjarnámi sem þarf að mæta af ábyrgð og framsýni.

Ég hef boðað betri stoðþjónustu gagnvart framhaldsskólakerfinu vegna þess að það er ljóst að skólarnir þurfa meiri stuðning frá stjórnvöldum. Við erum einnig í átaki til að byggja upp betri aðstöðu í verknámsskólum víða um land því verknám á að njóta virðingar og fá það húsnæði og þann búnað sem til þarf. Það skiptir líka máli að nefna að fyrri menntamálaráðherra Flokks fólksins, hv. þm. Guðmundur Ingi Kristinsson, heimsótti alla framhaldsskóla landsins síðastliðið haust og það hafði ekki verið gert svo árum skipti. Fyrir það á hv. þm. Guðmundur Ingi Kristinsson heiður skilið. Sú vinna skilaði mikilvægri innsýn og samráði við skólana og skólameistara og það hefur verið mikið og stöðugt. Ég vil leggja ríka áherslu á að aðgerðir verði áfram mótaðar í nánu samstarfi við skólasamfélagið sjálft. Þá var það eitt fyrsta verk mitt í ráðuneytinu að ráðast í skipulagsbreytingar og stofna sérstaka skrifstofu framhaldsskóla einmitt til að lyfta þessum mikilvæga málaflokki innan ráðuneytisins. Á þeirri skrifstofu er búið að skipa tengiliði við alla framhaldsskóla landsins. Tengiliðir eru þessa dagana að heimsækja alla skólana og við erum því í þéttu samtali við þá sem starfa innan skólanna mun oftar en áður.

Við viljum hlusta. Við viljum tryggja að við séum að bregðast við þeim áskorunum sem fólkið sem vinnur inni í skólanum er að benda á. (Forseti hringir.) Ríkisútvarpið kallaði framhaldsskólakerfið einu sinni hið týnda skólastig. Ég vil ekki sætta mig við það. Framhaldsskólinn á ekki að vera týndur í kerfinu. (Forseti hringir.) Hann á að vera sýnilegur og hann á að vera sterkur og studdur. Við ætlum að vinna með skólasamfélaginu að því markmiði.