fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Mig langar að halda áfram umræðunni og beina sjónum mínum sérstaklega að verk- og starfsnámi en ekki síður að þeim innviðum sem þurfa að vera til staðar. Við vitum að þörfin er mikil. Það er skýr eftirspurn eftir verk- og tæknimenntuðu fólki um allt land. Það hefur lengi legið fyrir. Þess vegna var farið af stað með áform um uppbyggingu við verkmenntaskóla. Þegar liggja fyrir viljayfirlýsingar fyrir nokkra skóla og í kjölfarið voru gerðar þarfagreiningar og þeim skilað til ráðuneytisins. Síðan eru liðin nokkur ár. Vil ég nefna Verkmenntaskóla Austurlands og Fjölbrautaskóla Suðurlands í því samhengi. En staðan í dag er sú að víða ríkir óvissa. Óvissa er vond, hún bitnar á skólum, nemendum og atvinnulífinu sem treystir á þessa uppbyggingu. Við erum að tala um raunveruleg dæmi eins og Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og Menntaskólann á Ísafirði, Verkmenntaskólann á Akureyri og Fjölbrautaskóla Suðurnesja og lengi má telja þar sem mikil þörf er víða. Á þessum stöðum er mikil pressa á að bæta aðstöðu og bið er eftir skýrum svörum um næstu skref. Í fjármálaáætluninni er gert ráð fyrir uppbyggingu og það skiptir máli að það sé ekki bara til á blaði heldur að það sé raunverulega fyrirsjáanlegt. Skólarnir þurfa að vita hvar þeir standa, hvenær eigi að fara af stað og að fjármagn sé tryggt. Það er líka mikilvægt að horfa aðeins fram á við. Ef við ætlum að efla verk- og starfsnám af alvöru þurfum við að byggja upp aðstöðu í takt við þarfir framtíðarinnar, ekki bara að bregðast við stöðunni eins og hún er í dag.
Í ljósi þess vil ég spyrja hæstv. ráðherra: Hver er staða þeirra framkvæmda við viðbyggingar framhaldsskóla sem skilgreindar eru í fyrsta fasa, bæði hvað varðar framgang og fjármögnun? Og síðari spurningin er: Hver er staðan í þeim skólum sem falla undir annan fasa uppbyggingarinnar?