fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðari ræðu sína og met hana mikils því að uppbygging verknáms á Íslandi skiptir gríðarlega miklu máli. Við höfum verið að stækka aðstöðuna í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti. Ég undirritaði nýverið samning um nýjan 30.000 m² tækniskóla í Hafnarfirði. Samhliða því er unnið að áframhaldandi uppbyggingu verknámsaðstöðu í fjórum framhaldsskólum úti á landi, þ.e. á Akureyri, á Sauðárkróki, á Ísafirði og í Keflavík. Staða þessara fjögurra skóla er að mörgu leyti svipuð. Framkvæmdasýslan vann frumathugunarskýrslur um verkefnin í maí 2024 og nú liggur fyrir heimild til að fara í útboð. Að útboðum loknum geta framkvæmdir hafist. Nú er unnið að því að skilgreina tímasetningar verkþáttanna en áður en að því kemur viljum við ljúka viðræðum við skólameistarana um þær forsendur sem eiga að liggja til grundvallar útboðunum. Það er mikilvægt, m.a. vegna athugasemda sem komið hafa fram við þær forsendur sem stuðst var við í frumathugunum. Við viljum vinna þetta í góðu samráði við heimafólk, taka tillit til aðstæðna á hverjum stað og við viljum vanda til verka. Þess vegna er ekki hægt að fullyrða um nákvæmar tímasetningar á þessari stundu en eitt er alveg víst; þessi uppbygging er og mun eiga sér stað. Nú hafa verið fráteknir tæpir 5 milljarðar kr. í uppbyggingu verknámsskólanna og við bindum vonir við að það dugi langleiðina. En með fjármagni sveitarfélaga er áætlaður framkvæmdakostnaður fyrir skólana yfir 8 milljarðar kr.
Að lokum vil ég nefna sérstaklega stöðuna varðandi Verkmenntaskóla Austurlands og Fjölbrautaskóla Suðurlands sem hér er spurt um. Um það vil ég segja: Samkvæmt viljayfirlýsingu frá árinu 2022 lýsti ráðuneytið sig reiðubúið að vera Verkmenntaskóla Austurlands innan handar við forathugun á stækkun á verknámshúsi skólans, enda sé forathugun nauðsynlegur undanfari þess að hægt verði að hefja framkvæmdir við bygginguna. Hins vegar hefur þessi forathugun ekki átt sér stað að svo stöddu gagnvart þeim skóla. (Forseti hringir.) Því liggur ekki fyrir á þessari stundu hvenær ráðist verður í uppbyggingu verknámsaðstöðu hjá þessum tveimur skólum en við gerum okkur fyllilega grein fyrir stöðunni.