157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[16:04]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Snorra Mássyni fyrir falleg orð í minn garð og hvatninguna og met hana mikils. Jú, það er rétt, það þýðir ekkert annað en að reyna að hanga í stýrinu þótt á móti blási. Við verðum að standa keik. En hvað það varðar að verið sé að skera niður til menntamála í fjármálaáætlun þá eykur sú nýja fjármálaáætlun sem hér er verið að kynna allverulega við frá því sem var. Það má segja að það hafi verið unninn ákveðinn varnarsigur hvað það varðar. Það átti, samkvæmt áætlunum, að skera niður um á fimmta milljarð króna. Varnarsigurinn felst í því að í staðinn fáum við yfir 4 milljarða kr. til baka til þess að setja áfram í málaflokkinn okkar. Við vitum að það eru áskoranir og við vitum að það eru þrengingar í samfélaginu og annað slíkt hvað viðkemur verðbólgu og baráttunni okkar við síþreytta okurvexti og verðbólgu. En það breytir ekki þeirri staðreynd að við tökum þessu alvarlega. Þessi ríkisstjórn hefur ákveðið að setja menntun í öndvegi. Þess vegna er ég nú mennta- og barnamálaráðherra, sá fyrsti sem hefur verið formaður stjórnmálaflokks — ég veit ekki hvort það er frá upphafi lýðveldissögunnar en alla vega hafa þeir ekki verið margir sem hafa viljað koma með þá ásýnd inn í menntamálin að þau séu raunverulega framtíðin og skipti okkur alveg gífurlega miklu máli. Við gerum okkar besta, hv. þingmaður, og ég veit að það mun ekkert barn verða skilið út undan. Það verður ekkert til sparað hvað það varðar. Það eru ýmis úrræði ef það kemur í ljós. Við mætum t.d. mjög stórum árgangi í haust í sambandi við umsóknir í framhaldsskólanám og ýmislegt annað. Það eru áskoranir alls staðar en ég stend keik í brúnni og ver vígið, hv. þingmaður.