fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Herra forseti. Ég vil þakka fyrir að fá það tækifæri að eiga hér orðastað við mennta- og barnamálaráðherra um þetta málefnasvið þegar við erum að ræða fjármálaáætlun. Mig langar svolítið að beina sjónum mínum að börnum sem glíma við áskoranir; eru með fíknivanda, hegðunarvanda eða þess háttar. Þetta er auðvitað þannig að þetta er — ef við notum orðið málaflokkur þá teygir þetta sig auðvitað yfir á fleiri en eitt ráðuneyti. Þetta er heyrir stundum beint undir hæstv. ráðherra sem hér er fyrir svörum en auðvitað líka undir heilbrigðisráðherra, bara svo að dæmi sé tekið.
Svo ég hafi nú bara svona smáformála þá held ég að þetta sé málaflokkur þar sem við erum öll hjartanlega sammála um að við viljum gera vel. Ég held að það fari ekkert á milli mála. En eins og þetta hefur birst mér á undanförnum árum þá hefur mér líka fundist eins og við séum svolítið fangar í einhverju kerfi sem við ráðum ekki alveg við. Ég get t.d. nefnt allan vandræðaganginn — sem er auðvitað ekki illur hugur hjá einum eða neinum heldur bara, held ég, það hvað kerfið er þungt í vöfum — þegar við erum að hugsa t.d. um meðferðarheimilið sem átti að rísa í Garðabæ. Þar var talsvert mikið flækjustig á milli ráðuneyta og á milli ríkis og sveitarfélaga, það tók langan tíma og þar fram eftir götunum. Við erum síðan að lenda í áföllum þegar Stuðlar brenna. Síðan erum við að horfa á að það er auðvitað verið að byggja upp aðstöðu, eins og til að mynda í Gunnarsholti, og koma í gagnið á ný. Mig langaði svolítið að inna hæstv. ráðherra eftir sjónarmiðum um framtíðaruppbyggingu í þessu kerfi og einhverri sýn um það hvernig þessu verði best fyrir komið til lengri tíma. Það er auðvitað alltaf kallað mikið eftir fleiri og fleiri meðferðarrýmum en auðvitað eru fleiri úrræði til sem eru þá kannski aðeins vægari. Mig langaði kannski bara að fá hugleiðingar og sýn hæstv. ráðherra á þetta.