157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[16:18]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sitt síðara ágæta innlegg í þessa mikilvægu umræðu. Samtalið hefur aðallega verið í höndum hæstv. heilbrigðisráðherra og hún er í virku samtali við aðila erlendis með tilliti til þess að auðvitað yrðu það Sjúkratryggingar Íslands — ef við viðurkennum þetta sem sjúkdóm og að þetta sé eitthvað sem heilbrigðiskerfið okkar verður að axla ábyrgð á — sem koma til með að styðja við það. Þó að ég hafi verið að nefna hér alls konar úrræði sem eru til staðar nú þegar þá hefur mín framtíðarsýn verið sú, eins og hv. þingmaður nefnir, að það sé mikilvægt að taka einstaklinginn úr aðstæðum. Já, það er þekkt og viðurkennt í þessu fagi sem lýtur að fíknisjúkdómum að það skipti mjög miklu máli fyrir einstakling sem er haldinn þeim sjúkdómi að komast úr aðstæðum til að ná bata. Þess vegna á ég mér þann draum að við eigum að geta byggt upp okkar eigið meðferðarúrræði þar sem börnin eru tekin úr aðstæðum, þar sem er svona vin í eyðimörkinni einhvers staðar frá ys og þys stórborga eða bæja, einhvers staðar þar sem þau fá að njóta sín í fallegu umhverfi með dýrum og hljóðfærum — ég bara sé þetta fyrir mér.

Ég vil bara að þeim líði vel og mig langar til að taka þau úr þessum aðstæðum. Við eigum það því miður ekki en við gerum okkar besta eins og staðan er núna. Það er unnið gífurlega mikilvægt starf á Stuðlum og fleiri stöðum, eins og við vitum. En við þurfum að gera svo miklu meira og miklu betur. Stóri áfanginn er í rauninni þessi samlegð sem er komin á milli félagsmála-, heilbrigðis- og barnamálaráðuneytisins þegar kemur að því að taka utan um málaflokkinn af öllu hjarta og fylgja honum eftir lið fyrir lið þangað til við erum búin að ná þeim árangri sem að er stefnt; að öll börnin okkar sem glíma við þennan vanda fái ekki einungis úrræði og meðferð við hæfi heldur þurfum við líka að grípa þau fyrr, áður en þau detta á þennan stað. Þessi snemmtæka íhlutun, þetta er hugtak sem oft er notað. Það skiptir öllu máli að við getum náð að grípa börnin okkar á fyrri stigum. Þá skiptir t.d. máli hvert við vísum þeim, í íþróttir, félagsstarf eða æskulýðsmálin; allt það sem við getum gert og eigum að gera svo miklu meira af og betur.