157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[16:39]
Horfa

Snorri Másson (M):

Virðulegur forseti. Ég nota tækifærið til að lofa aftur hæstv. ráðherra fyrir ágæta umræðu hér áðan um skóla án aðgreiningar en þar er sannarlega verk að vinna. Í sambandi við menntamálin hefur maður orðið var við nokkra umræðu að undanförnu um skólabyggingarnar og regnbogafána utan við skólabyggingarnar, regnboga- og transfána ýmiss konar. Ég minnist heimsóknar minnar og hæstv. ráðherra í nýlegan skóla í Reykjavík þar sem við fórum í einhverri kjördæmavikunni, hvort það var í fyrra, þar sem var ekki bara fáni fyrir utan heldur hver einasti starfsmaður með hálsband með starfsmannakortinu með regnbogalitunum, flennistórir regnbogafánar á bókasafninu, flennistórar auglýsingar fyrir svokallaða hinsegin félagsmiðstöð fyrir allt niður í 5. bekk, minnir mig, 6. bekk eða 5. bekk, og félagsmiðstöðin öll sett regnbogans litum. Svo eru það Samtökin ´78 sem eru auðvitað félagasamtök sem eru með mikla samninga við sveitarfélögin og hið opinbera er með afar sérstakar hugmyndir á ýmsum sviðum sem almenningur deilir ekki öllum. Það eru tugir milljóna á ári sem fara í þetta en kirkjan fær á sama tíma ekki að fara inn í skólana. En maður heyrir töluvert frá foreldrum að þeim finnist þessar hugmyndir og þessi fræðsluáróður svokallaður ekki alveg eiga alltaf heima inni í skólum. Sumir hafa gengið svo langt að færa börnin sín til á milli skóla þar sem þetta er skárra. Ég vildi forvitnast um hvað hæstv. ráðherra fyndist um þetta. Það er alltaf látið eins og þessir fánar séu bara þessi miklu tákn umburðarlyndis en í núverandi mynd þá finnst mér mun frekar að þessir fánar líkist stundum frekar tákni um ákveðna hugmyndafræðilega kröfu, um hugmyndafræðilega undirgefni, hlýðni, að ekki sé gerð athugasemd við að þetta, sem er orðið að hálfgerðu veraldlegu trúartákni, sé látið vera fyrir utan skóla, jafnvel leikskóla stundum. Væri ekki nær, að mati hæstv. ráðherra, að sleppa þessu í skólabyggingum, læt vera almennt og í opinberum byggingum, en skólabyggingum, og hafa frekar íslenska fánann sem ég teldi fara betur á? (Forseti hringir.) Við segjum í Miðflokknum: Þetta er ekki flókið, burt með „woke-ið“. Það væri forvitnilegt að vita hvað hæstv. ráðherra þykir um þetta.