157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[16:41]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Snorra Mássyni fyrir hans ágæta innlegg hér. Hann kemur inn á málaflokk sem hefur verið talinn viðkvæmur málaflokkur. Hann er hér að vísa í jaðarsetta minnihlutahópa í samfélaginu sem eru samkynhneigðir og hinsegin fólk og við í rauninni megum þakka fyrir hvað okkar samfélag hefur skarað fram úr á heimsvísu hvað lýtur að umburðarlyndi og jafningjatilfinningu gagnvart öllu þessu fólki. Við virðum allt þetta fólk eins og okkur sjálf.

Það er annað sem hv. þingmaður nefnir þarna sem ég er heils hugar sammála um, hvort það eru regnbogafánar í einum skóla umfram annan, því að þetta er ekki algilt, þetta er mismunandi og í rauninni hverjum skóla í sjálfsvald sett hvort hann hengir upp fána til stuðnings ákveðnum hópum í samfélaginu, en hins vegar sakna ég þess að vera ekki með litlu jólin. Ég sakna þess að hafa ekki kirkjuna okkar og kristindóminn í kringum jólahaldið inni í skólunum. Það var mesti spenningurinn hjá okkur í grunnskóla, man ég, þegar jólin voru að nálgast. Þá fengum við að leika jólaleikrit og það var ofboðslega falleg stund þar sem við mættum öll í Ólafsfirði í fallega íþróttasalinn okkar. Þarna vorum við prúðbúin í hátíðaskapi með kertaljós og sáum Jesúbarnið í jötunni og við fengum að leika þar. Ég sakna þess og ég myndi mjög gjarnan vilja koma því á aftur vegna þess að kærleikurinn okkar kostar ekkert og við erum kristin þjóð og ég bara mun virkilega fylgja því eftir.