157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[16:43]
Horfa

Snorri Másson (M):

Virðulegur forseti. Ég ætlaði að óska eftir að fá aðeins skýrt hvort hæstv. ráðherra var að tala um að hann væri heils hugar sammála því að regnbogafánarnir ættu ekki að vera í skólum, frekar íslensku fánarnir, hvort það væri það sem hæstv. ráðherra væri heils hugar sammála um. Vegna þess að ég þykist vita að við séum sammála um hlutverk kirkjunnar, ég held að það væri nú skaðlaust að hleypa kirkjunni að í skólum. Það er hins vegar líka umdeilt mál. En að fá kannski frá hæstv. ráðherra hvort hann telji regnbogafána eiga að vera í svona miklum mæli í grunnskólum og jafnvel leikskólum. Og sömuleiðis kannski að spyrja, fyrst við erum á þessum nótum og af því við erum náttúrlega líka með framhaldsskólakerfið hérna undir, hvort hæstv. ráðherra telji að kynjafræði, sem felur í sér að hluta til sumar af þeim forvitnilegu hugmyndum sem transhugmyndafræðin felur í sér, eigi að vera skyldufag í framhaldsskólum, jafnvel grunnskólum, eins og hefur verið boðað í aðgerðaáætlunum. Er hæstv. ráðherra fylgjandi því? Jafnvel að maður sjái dæmi um að í framhaldsskólum komast menn upp með að útskrifast með stúdentspróf án þess að fara í gegnum svo mikið sem einn áfanga í Íslandssögu en eru þó skyldaðir til að fara í gegnum kynjafræðiáfanga og þar eru kenndar margar misgáfulegar hugmyndir og svona hálfgerður pólitískur áróður á ýmsum sviðum. Hvert er mat hæstv. ráðherra á þessu? Þannig að það er þetta tvennt: kynjafræðin í skólunum, hvort hæstv. ráðherra telji ekki að þegar við erum að einblína á grunnfærni megi slíkt bara raunverulega missa sín úr skólum, enda eru þetta einfaldlega umdeild fræði, sannarlega umdeild fræði. Þau eru sannarlega runnin af pólitískri rót og varla hægt að útsetja saklausa nemendur fyrir því að vera skyldaðir til þess að læra þessi fræði sem eru á mörgum sviðum bara bull. Þannig að það eru þessir þættir: Hvaða skoðun hefur ráðherrann á fánunum og svo kynjafræðinni?