fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þetta og myndi óska eftir því að ráðherra myndi aðeins útskýra fyrir okkur þingmönnum, ef það liggur ekki þegar fyrir, ég hef ekki upplýsingar um það, hvað fyrri hluti framkvæmdar nýs fangelsis þýðir. Hvað eru það mörg pláss? Ég sé það í umræðunni að gert er ráð fyrir því alla vega á einhverjum tímapunkti að kostnaður nýs fangelsis, þá geri ég ráð fyrir þessum 128 plássum, sé tæplega 18 milljarðar kr. en þá er ekki að finna í fjármálaáætlun. Það er kannski punkturinn. (ÞorbG: Hvað segirðu?) 18 milljarða kr. Þá tölu er ekki að finna í fjármálaáætluninni. Ef sú tala reynist rétt eru þetta 160 milljónir á pláss sem er nú býsna rífleg fjárhæð. Einhvern veginn þurfum við að vinna bug á þessu öllu. Ég er þeirrar skoðunar að leiðin geti ekki verið sú, sem hefur verið stunduð hér á Alþingi um árabil, að löggjafinn sé í raun og veru að milda dóma eftir á til að stytta biðlistana, hvort heldur sem er með því að auka möguleika á samfélagsþjónustu eða þá nýjasta frumvarp ráðherrans um að liðka fyrir að einstaklingar af erlendu bergi brotnir, sem til stendur að brottvísa af landinu, þurfi að afplána styttri dóma. Þá komum við kannski að því sem vantar. Það er heildstæð stefna í fullnustumálum. Ríkisendurskoðun benti á í skýrslu sinni frá árinu 2023 og í eftirfylgniskýrslu 16. febrúar 2026 að það vantaði heildstæða stefnu í fullnustumálum. Ég spyr því ráðherrann: Hvar er sú stefna?
Ég sé líka ástæðu til þess að spyrja ráðherrann (Forseti hringir.) um úrræði varðandi kvenfanga sérstaklega sem ríkisendurskoðandi hefur verið að benda á að þurfi að bæta úr.