157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[17:00]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Stóra svarið um ástand fangelsismála, og ég ætla bara að leyfa mér að segja það á íslensku, er að hér hefur ekkert gerst í áratug eða svo. Á sama tíma höfum við verið allt að því heimsmeistarar í fólksfjölgun og allt landslag afbrota hefur gerbreyst. Við erum með þyngri dóma og við erum með fleiri morðmál en ekkert hefur gerst í fangelsismálum. Hv. þingmaður spyr um skiptinguna á þessu. Fyrri hluti þessarar framkvæmdar er fjármagnaður í fjármálaáætlun. Það er talað um að í fyrsta áfanga verði um 56 fangelsispláss. Fangelsispláss sem þá þegar eru fyrir hendi eru um 82 á Litla-Hrauni. Með því að nýta Litla-Hraun áfram á meðan við erum í þessum fasa erum við strax komin fram með raunfjölgun plássa. Þingmaðurinn nefnir: Eigum við að hleypa mönnum fyrr út vegna stöðu mála í fangelsum? Það er ójafnræði í afplánun í dag. Erlendir fangar fara fyrr út úr fangelsi en Íslendingar, fara fyrr út úr fangelsi en íslenskir fangar; eru komnir á Vernd vegna þess að þeirra bíður brottvísun og þeir eru komnir fyrr þangað. Íslendingar sitja lengur í fangelsi en útlendingar. Ég er að vinda ofan af þeirri framkvæmd og ég er að segja, og þetta er pólitísk afstaða og pólitísk yfirlýsing, að fyrir menn sem eru með engin tengsl við landið og hafa jafnvel komið hingað í þeim eina tilgangi að brjóta af sér — ég sé engin rök til þess að senda þá út á reynslulausn eða í einhverja aðlögun inn í íslenskt samfélag þegar þeirra bíður ekkert annað en brottvísun. Með því að brottvísa þessum hópi fanga eitthvað fyrr þá losnar um í fangelsunum. Þetta er tímabundin aðgerð. Þetta er enginn hvati til brota af því að þetta á við um þá sem eru þá þegar í fangelsum landsins. Og með því að þingið standi saman að því að afgreiða frumvarp um brottfararstöð þá erum við komin með ákveðnar bjargir til skemmri tíma. En vissulega er öryggisfangelsið, stóra fangelsið, til lengri tíma.