157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[17:07]
Horfa

Snorri Másson (M):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir svörin og fagna því að hæstv. ráðherra átti sig á augljósu samhengi innflytjendamála við atvinnustefnu. Það væri fagnaðarefni ef fleiri hæstv. ráðherrar í ríkisstjórn gerðu það, en allt um það. Hæstv. ráðherra boðar, a.m.k. er það boðað hér í umfjöllun um málefnasviðið, að breytingar verði gerðar á dvalarleyfiskerfinu. Það er nú þegar yfirstandandi ýmislegt sem lýtur að því og allt sem lýtur að því að þrengja skilyrði til innflutnings vinnuafls á Íslandi hygg ég að ég geti stutt. Ég ætlaði að ná að leggja fram hér, áður en maður bregður sér frá í þessari viku, tillögu til þingsályktunar sem kveður á um hert skilyrði við ríkisborgararéttinn: Færa tímabilið upp í tíu ár, t.d. til samræmis við Danmörku, ekki að það sé sjálfstætt markmið en Danmörk er með það þannig. Færa tungumálaprófið upp í B2 a.m.k. þannig að krafan sé trúverðug, sem hún er ekki núna. Bæta við samfélagsprófi eins og er víða annars staðar þar sem prófið er þekking umsækjenda á raunverulegum aðstæðum í íslensku samfélagi, sögu þess, samfélagslegum málum og öðru eins. Sömuleiðis vildi ég leggja til í þessari tillögu, og mun leggja til, að tekið verði til endurskoðunar í einhvers konar samvinnu, ef verða vill, innan þings hvernig veitingu ríkisborgararéttar hefur verið háttað af hálfu hæstv. allsherjarnefndar. Þetta eru nokkrir þættir sem ég verð með í minni tillögu og ég hefði áhuga á að vita hvort hæstv. dómsmálaráðherra geti stutt þessi sjónarmið og hvort það séu jafnvel fleiri þættir sem við getum bætt inn í þessa vinnu. Maður verður stuðningsmaður slíkrar vinnu t.d., eða ekki t.d. heldur í raun og veru í grunninn, til að þoka þessu í þá átt að við séum ekki að veita ríkisborgararétt almennt á heildina litið í jafn ríkum mæli til erlendra ríkisborgara eins og verið hefur, vegna þess að þetta hefur tekið á köflum út yfir allan þjófabálk og sum árin farið fram úr hófi.