fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Forseti. Vegna orða formanns Afstöðu — ef ég myndi aðeins tala glannalega, þá finnst mér hann jafnan komast að þeirri niðurstöðu að það sé bara best að menn afpláni kannski ekki dóminn sinn. Dómsmálaráðherra er ósammála því. Öryggisfangelsi er í eðli sínu dýr bygging. Við erum t.d. að gera það á Íslandi, vegna þess að við erum fámennari, að reisa í einu fangelsi það sem væru í Danmörku kannski þrjú ólík fangelsi. Það er aðeins dýrara en þannig þurfum við að gera þetta. Öryggiskröfurnar sem við þurfum í svona fangelsi, t.d. vegna landslagsins í kringum skipulagða brotastarfsemi, gera það að verkum að þessi bygging er dýr. Erum við að horfa á aðra hluti? Já, við erum að tala um að fjölga plássum á Sogni, t.d. vegna kvenna sem þurfa að afplána dóma, við erum auðvitað með Kvíabryggju og við erum með opin fangelsi á Íslandi en við höfum aldrei byggt, hannað eða reist sérstakt öryggisfangelsi.
Hv. þingmaður spyr og ég er sammála því að það hafa verið mikilvæg skilaboð sem hafa heyrst frá forystu ríkisstjórnarinnar allrar: Þegar við erum að tala um hagræðingu snertum við ekki á framlínustarfsmönnum. Það er algjörlega skýrt og það á svo sannarlega við um lögreglumenn. Það sem ég er að horfa á með skipulag lögreglu er hvort annað skipulag lögreglu geti eflt hana, geti styrkt hana í rannsóknum og styrkt hana í viðbragði. Það yrðu þá sameiningaráform, sem eru nota bene mjög stutt á veg komin, þetta er enn á hugmyndastigi, sem þjóna því hlutverki fyrst og fremst að efla þjónustu við fólkið í landinu, efla viðbragðið, styrkja löggæsluna og gera henni betur kleift að taka þátt í nútímasakamálarannsókn vitandi það að brotin ferðast landa í millum og sakamálarannsóknirnar verða að geta tekið mið af því. Þess vegna erum við t.d. alltaf að horfa á hvað er að gerast á eina alþjóðlega flugvellinum okkar o.s.frv. Ég hefði mjög gjarnan viljað koma inn á sýslumanninn en sú vinna er í gangi núna. Hún gengur vel og okkur er mjög umhugað um það að það sé vel unnið úr því máli sem Alþingi afgreiddi.