157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[17:26]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegur forseti. Ég heyri alveg hvað ráðherrann segir en ég er á bls. 7 og ég sé að árið 2027 er útgjaldaramminn til almanna- og réttaröryggis rúmir 52 milljarðar og hann endar í tæpum 46 milljörðum árið 2031. Ég veit alveg að fyrstu þrjú árin er uppbygging fangelsis upp á einhverja 5–6 milljarða á árunum 2027 og 2028, ég veit það. Spurningin er: Er þá verið að blekkja, árin 2029, 2030 og 2031, með því að taka það út? Það ættu að vera 6 milljarðar áfram þar inni ef það á að halda áfram að byggja það fangelsi. Eða á bara að hætta því eftir fyrsta áfanga? Á málefnasviði 10 á að lækka um 2 milljarða. Á sama tíma þegar rammarnir eru að minnka getur verið erfitt fyrir ráðherrann að segja að hann sé að auka þetta allt saman á fullri ferð þó að við vitum að það er það sem þarf. Og við vitum líka að einstaka stofnanir eru reknar núna með halla sem nemur verulegum fjárhæðum og það þarf að spýta í.

Þá spyr ég aftur ráðherra: Hvernig á til að mynda að standa við það að byggja upp lögregluna í landinu ef hallinn er kannski orðinn 100 milljónir á undanförnum árum? Í raun og veru þyrfti að bæta við 100 milljónum. Og hitt, ríkisstjórnin ætlar að ná fram verulegum sparnaði með því að fækka ríkisstarfsmönnum um 1%. Það er væntanlega ekki í löggæslunni, það er örugglega ekki hjá dómstólunum. Það er ekki hjá Landhelgisgæslunni eða hvað? Þá hlýtur maður að velta fyrir sér: Hvernig á að fækka ríkisstarfsmönnum um 1% ef það er ekki í heilbrigðiskerfinu og ekki í þessu? Hvar á að fækka? Á að fækka ríkisstarfsmönnum í málaflokkum ráðherrans? Er það hluti af hagræðingu? Er það hluti af lækkuninni sem nemur allt að 9 milljörðum hjá hæstv. ráðherra? (Forseti hringir.) Dómstólarnir halda sér út tímabilið enda býst ég við að þar séu fyrst og fremst laun sem eru undir í þeim rekstri og einhver húsaleiga sem breytist ekki heldur.