fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegi forseti. Hv. þingmaður spyr ofboðslega óvænt um þjóðaröryggismálin og ég er honum þakklát fyrir það. Varðandi uppbyggingu sérsveitar þá er það eindregin afstaða dómsmálaráðherra að þegar við erum að ræða 1,5% þá eigum við sannarlega að beina kastljósinu í þeim efnum að útgjöldum til sérsveitar, til greiningardeildar og til almannavarna. Innan ráðuneytanna er verið, eins og kom fram í umræðum í gær, og ég lifi nú svo spennandi lífi að í gærkvöldi horfði ég á hv. þingmann í umræðum við hæstv. utanríkisráðherra. Það er verið að vinna það hvað fellur undir þessi 1,5% og þar erum við að horfa til þess hvernig Norðurlandaþjóðirnar vinna að því að efla öryggi sitt og áfallaþol. Með nýsamþykktri þingsályktun um varnar- og öryggismál var lögð sérstök áhersla á að efla líka borgaralega innviði, lögreglu, Landhelgisgæslu, almannavarnir og áfallaþol. Ég var mjög ánægð með þetta nefndarálit og ég var mjög ánægð með það að þingið skyldi sameinast í þessum efnum. Fjárveitingar til lögreglu og fjárveitingar til Landhelgisgæslu voru auðvitað varanlega auknar á síðasta ári og við verðum að horfa líka og ekki síður á eiginleg varnarframlög. Ég er skoðanasystir hæstv. utanríkisráðherra um að það þurfi að efla CERT-IS í þeim efnum. En eins og utanríkisráðherra sagði í umræðunni í gær þá eru þetta verk sem eru í vinnslu. Þetta er unnið þvert á ráðuneyti og við vinnum sameiginlega skýrslu um hvernig við uppfyllum þetta í greinargerð til NATO.
Ég kem kannski frekar að þessu með leit og björgun sem hv. þingmaður nefndi í síðara svari en ég geri ráð fyrir því að næsta spurning fjalli um þyrlu.