fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Herra forseti. Já, er það ekki bara að staðfesta málið og klára dæmið þannig að við getum samþykkt þetta með fjármálaáætlun? Ég ætla að taka annað fyrir en ég vonast til að ráðherra geti aðeins farið í þetta mál. Við sjáum að umsagnir t.d. Landhelgisgæslunnar við málið bæði í vetur og áður hafa verið mjög jákvæðar og talað um, ég held að það hafi verið notað orðið bylting í umsögn Landhelgisgæslunnar varðandi starfsemi þyrlureksturs Landhelgisgæslunnar í umsögnum þar.
Mig langar síðan að impra á punkti, við sátum held ég tveir kjörnir þingmenn, hæstv. ráðherra og sá sem hér stendur, á fundi Neyðarlínunnar í maí í fyrra varðandi TETRA-kerfið og fjarskiptakerfi. Það hefur ekki verið mikil umræða um málið en þetta er eitt af því sem maður þekkir bara úr sinni gömlu vinnu hvernig virkar og hvað þetta skiptir miklu máli. Þetta er raunverulega kerfi sem er að úreldast og flestar þjóðir eru komnar mun framar en við í að endurnýja það sem snýr að TETRA-fjarskiptakerfinu. Eru komin einhver plön í þessari fjármálaáætlun eða eitthvað sem hæstv. ráðherra getur kynnt varðandi það hvernig við ætlum að takast á við fjarskiptakerfið, hvað á að taka við af TETRA-kerfinu? Þegar við erum að ræða viðnámsþrótt og áfallaþol á Íslandi er fjarskiptakerfið, sem hefur verið TETRA og við erum að bíða eftir öðrum viðbótum við það eða öðru kerfi til að taka við, gríðarlega mikilvægt. Þetta er raunverulega grunnurinn að mörgu leyti að viðnámsþrótti og áfallaþoli samfélagsins, það kerfi. Það væri því fróðlegt að heyra hvort það hafi farið fram einhver vinna á vegum ráðuneytisins sem snýr að þessu, hvort það sé kominn einhver starfshópur eða hvernig eigi að leysa þetta dæmi vegna þess að þetta er stórt og mikið verkefni og þarf klárlega að leysa á næstu örfáu árum því kerfin úreldast mjög hratt.