fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Forseti. Á þessum skamma tíma langar mig að fara yfir þrennt sem ég tók eftir í þessari ræðu hjá hv. þingmanni. Talandi um óskhyggju. Ég veit að það eru gerðar athugasemdir eða farið yfir ákveðnar forsendur í þessari fjármálaáætlun, til að mynda framleiðni, verðbólguspá og annað. Höfum það á hreinu að þessi ríkisstjórn framleiðir ekki eigin hagspár. Það gerum við ekki. Við nýtum hagspár frá opinberum aðilum. Í þessu tilviki erum við að nýta hagspá Seðlabanka Íslands. Ef fólk telur það vera óskhyggju þá snýr það að trúverðugleika þeirrar stofnunar. Þetta er sú stofnun sem hefur mikinn trúverðugleika þegar kemur að hagspárgerð. Við getum alveg tekið umræðu um það hvernig hagþróun getur orðið á næstu misserum en þetta eru opinberar spár. Ég hygg að það sé a.m.k. mikilvægt að við séum með festu hvað það varðar.
Mig langar að svara þessu líka varðandi almannatryggingakerfið. Það liggur alveg fyrir að sú umræða sem hér hefur farið fram, m.a. um stöðu kerfisins, byggist að einhverju leyti á því að fólk er að gera lítið úr tillögum og aðgerðum sem fyrrverandi ríkisstjórn réðst í sjálf. Það voru gerðar breytingar hér á greiðslum til öryrkja og eldri borgara á kjörtímabili fyrri ríkisstjórnar. Það eru grunnviðmiðin. Það sem þessi ríkisstjórn er að segja er að við ætlum ekki að láta þessar upphæðir, sem var sátt um í þinginu, m.a. af fyrri ríkisstjórn og flokki hv. þingmanns, um að ráðast í, rýrna ekki í kerfinu. Ég veit ekki hvort áætlunin hafi verið sú af síðustu ríkisstjórn að fara í greiðslur og viðbótargreiðslur til öryrkja og eldra fólks til þess eins að hrifsa þær af þeim út af launaþróun í kerfinu. En við erum alveg sátt með það og sofum vel að sjá að þau sjái hag sinn vaxa í takt við hagkerfið eins og aðrir launþegar.
Ég gæti farið hér yfir umræðu varðandi stöðugleikareglu. Mér gefst ekki tími til þess en ég hygg að eflaust komi það málefni upp hér aftur og ég mun glöð svara því.