fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir yfirferðina. Að mínu mati og líklega að mati allra meðlima ríkisstjórnarflokkanna er okkar stærsta verkefni núna að ná tökum á vöxtum og verðbólgu og ná að koma fram með hallalaus fjárlög, ná tökum á því að greiða niður skuldir. Allt eru þetta kannski verkefni sem krefjast ákveðinnar þolinmæði og þess að við stöndum í lappirnar og höldum kúrsi þó að á reyni. Mér hefur stundum fundist ég skynja hérna í salnum að umræðan sé svolítið föst í því að hv. þingmenn eru með þetta svolítið mínar staðreyndir og þínar staðreyndir einhvern veginn. Ég hjó eftir því þegar ég var að skoða fjármálaáætlunina að ég sá þar töflu þar sem tekjur sem hlutfall af vergri landsframleiðslu eru að dragast saman á tímabili þessarar áætlunar. Nú er ég ekki hagfræðimenntuð en þykist skilja helstu hugtök og hvað við erum að sýsla með í þessu öllu saman. Mig langaði þess vegna í fyrsta kasti að spyrja hæstv. forsætisráðherra hvort það sé ekki rétt skilið hjá mér að í reynd sé skattbyrði að minnka á tímabili áætlunarinnar. Hins vegar langaði mig líka að fara aðeins yfir í hallalaus fjárlög vegna þess að það er auðvitað gríðarlega mikilvægt markmið og mikilvægt að ná því ári fyrr en áætlað var eins og kom fram áðan. En hvað þýðir það í reynd fyrir ríkisfjármálin? Hvað þýðir það í reynd fyrir innviðafjárfestingu sem við erum búin að segjast ætla að fara út í og þau verkefni sem bíða okkar til framtíðar? Hvað þýðir það að ná hallalausum fjárlögum ári fyrr en áætlað var?