157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[18:25]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir þetta. Við erum að ræða fjármálaáætlun sem er stefnumarkandi áætlun ríkisstjórnarinnar til fimm ára í senn. Vissulega er þetta áætlun og ég held að við gerum okkur öll grein fyrir því sem hér erum inni enda er oft erfitt, ef ekki ómögulegt, að sjá fyrir eða spá um hvernig þróun efnahagsástandsins hérlendis eða erlendis mun verða á næstu fimm árum. Við þekkjum það nú hér, við höfum séð ýmis áföll ganga yfir þjóðina, hvort sem það var Covid, fall flugfélaga eða Reykjaneseldar, við höfum séð óvissu erlendis þannig að vissulega gerum við okkur grein fyrir því að hér er um áætlun að ræða. Engu að síður er þetta stefna. Þetta er stefna ríkisstjórnarinnar, stefna sem við þurfum að taka alvarlega hér á Alþingi sem og fólkið úti í samfélaginu, hvort sem það eru sveitarfélögin, atvinnulífið eða heimili landsins. Því skiptir fjármálaáætlun máli. Hún er stefnumarkandi plagg ríkisstjórnarinnar í öllum málaflokkum ríkisins. Hún þarf að skapa tiltrú á efnahagslegan stöðugleika til að sýna almenningi að ríkisstjórnin ráði við verkefnið.

Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar hefur ekki skapað kjölfestu í hagstjórninni eins og stefnt var að. Ávöxtunarkrafa á ríkisbréf hækkaði í kjölfar kynningarinnar sem þýðir að vaxtakostnaður ríkissjóðs er að aukast vegna þess að fjárfestar meta það sem svo að það sé meiri óvissa og áhætta í hagkerfinu. Ég spyr því hæstv. forsætisráðherra: Þarf ekki meira að koma frá ríkisstjórninni til að ná tökum á stöðunni og heildstæðari nálgun en birtist í fjármálaáætlun? Ég vil minna á að vaxtakostnaður ríkissjóðs er um 145 milljarðar.