fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Það er auðvitað alltaf hægt að tala um það að gera meira og betur. Ég held að allir geti verið sammála um það. Ég held að allir hérna inni viti líka að það þarf að forgangsraða og það þarf að velja og hafna. Þessi ríkisstjórn stendur frammi fyrir því að það er gríðarleg innviðaskuld í kerfinu. Við erum líka að koma út úr tímabili 0% hagvaxtar á mann sem þýðir að við höfum séð mikla fólksfjölgun hér á landi sem hefur krafist aukinnar þjónustu, sem er vel. En það breytir því ekki að veruleikinn er sá að það eru fleiri þurfa að sækja opinbera þjónustu ef hagvöxtur er drifinn áfram af svo mikilli fólksfjölgun. Það þýðir að við erum með skuld í velferðarkerfinu, við erum með skuld í vegakerfinu og ákveðnum innviðum.
Það er alltaf vandasamt að ætla að taka það fast í bremsuna að við breytum afkomu ríkisins um tugi milljarða á einu ári enda er það ástæðan fyrir því að fyrri ríkisstjórnir hafa ekki farið þá leið. Fyrri ríkisstjórn var til að mynda með síðustu fjármálaáætlun sína þannig að þau ætluðu ekki að ná afkomunni fyrr en 2028. Þau höfðu sínar ástæður fyrir því. Hér stöndum við hins vegar engu að síður í dag og gerum athugasemdir við að ári fyrr náum við betri afkomu og hún sé ekki nógu mikil. Ég kann að meta að það sé metnaður hér í þessum sal. Ég kann að meta það að fólk vilji gera betur. Ég kann líka að meta það að fólk upplifi að 4,8% atvinnuleysi og 5,4% verðbólga, sem sögulega séð er ekki vond staða á Íslandi, skuli ekki þykja nógu góð staða. Það þýðir að við erum á betri stað í efnahagsumræðunni. En að halda því fram að ekkert hafi áunnist vegna þess að afkoman sé bara ekki nógu góð nógu snemma þrátt fyrir að fyrri ríkisstjórnir hafi ekki treyst sér til að koma jafn tímanlega fram með slíkan afkomubata — ég set spurningarmerki við það.