fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Forseti. Ég ræddi hér vissulega um tekjuaðgerðir þar sem ég benti á að tekjuráðstafanir fyrri áætlunarinnar, í fyrri áætlun fjármálaráðuneytisins sem Sjálfstæðisflokkurinn stýrði, eru með sömu upphæð sem hlutfall af vergri landsframleiðslu og er lögð fram í þessari áætlun. Ég er ekki að búa þetta til. Við erum vissulega með öðruvísi pólitík, hv. þingmaður, en það þarf ekki annað en að skoða tekjuráðstafanir í þessari áætlun. Þó að ég hafi minnst á þær, af því að formanni Sjálfstæðisflokksins er svo hugleikið að tala um tekjur, þá er það ekki rétt að það sé ekkert verið að gera á útgjaldahliðinni. Það eru hagræðingaráætlanir sem standast og snúa að 107 eða 110 milljarða útgjaldasparnaði og það þarf ekki annað en að skoða gröf sem eru í inngangi þessarar fjármálastefnu til að sjá hvernig heildarútgjöld ríkissjóðs fara lækkandi sem hlutfall af vergri landsframleiðslu og eru að lækka á þessu tímabili niður fyrir útgjöldin sem voru á tímum síðustu ríkisstjórnar. Það er gott og blessað að tala um skatta og skattleggja hluti í drep. En það er annað þegar tölurnar eru skoðaðar og það er ekki staðreynd málsins ef tölurnar eru skoðaðar.
Varðandi plön og útspil vegna eldsneytis, já, við höfum sett okkar mark á það og sett þá línu að koma afkomunni á réttan stað eins og við gerðum núna tvær fjármálaáætlanir í röð þrátt fyrir breyttar forsendur. Ég verð að segja fyrir mína parta að ég undrast þessa andstöðu við eftirlit með lækkun vasks. Ég vona að ríkið muni ekki þurfa að beita því. En hvað var það fyrsta sem neytendur þarna úti spurðu um þegar við tilkynntum þessa lækkun? Munu olíufélögin skila þessu til okkar? Þetta er einföld spurning. Þarna er verið að segja: Þetta er skammur tími. Við höfum ekki tíma til að vera að eltast við einhvern ef þetta skilar sér ekki. Ég hef allar forsendur til að trúa því að það muni ekkert reyna á þetta. En hvar er stuðningur Sjálfstæðisflokksins við neytendur í þessu máli? Af hverju eru gerðar athugasemdir við það að við fylgjumst með því að skattalækkun skili sér til neytenda? (Forseti hringir.) Af hverju gerir fólk athugasemdir við það að skattalækkun skili sér til neytenda? Það hlýtur að vera fagnaðarefni.