fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegur forseti. Forgangsmál fyrstu fjármálaáætlunar þessarar ríkisstjórnar var að ríkissjóður yrði rekinn hallalaus árið 2027. Önnur fjármálaáætlun hefur nú verið lögð fram og samkvæmt áætlun verður afgangur af rekstri ríkissjóðs á öllum árum áætlunarinnar, 2027–2031. Styrk og öguð hagstjórn er helsta hagsmunamál þjóðarinnar og ávísun á lífsgæði til framtíðar. Undir innviðaráðuneytið heyra sveitarstjórnarmál og byggðamál, samgöngumál, fjarskiptamál og póstmál. Ráðuneytið ber ábyrgð á 582 milljarða kr. fjárheimildum á tímabili áætlunarinnar.
Heildarframlög til málefnasviðs samgangna og fjarskipta á tímabili áætlunarinnar nema 377 milljörðum kr. Við glímum sem fyrr við miklar áskoranir á sviði vegamála. Umferð á þjóðvegum hefur meira en tvöfaldast á 15 ára tímabili og horfur eru á að umferðin aukist enn á næstu árum. Aukin umferð eykur álag á slitlag, brýr og burðarlag vega og ástandið er víða bágborið vegna mikillar viðhaldsskuldar sem fengið hefur að safnast upp um langt skeið. Á sama 15 ára tímabili hafa þungaflutningar stóraukist á vegum og strandflutningar hafa dregist saman. Um 40% vega eru metin í slæmu eða mjög slæmu ástandi og 30% vegakerfisins eru með slakt burðarlag.
Tæpur áratugur er frá upphafi síðustu jarðgangaframkvæmda. Samkvæmt viðhorfskönnun töldu árið 2007 66% sig örugg á vegakerfinu. Árið 2024 var þetta hlutfall komið í 45%. Árið 2009 töldu 45% vegi í góðu eða mjög góðu ástandi. Árið 2024 var hlutfallið komið niður í 16%. Hafið þetta í huga, kæri þingheimur: Árið 2009 voru 45% sem töldu að vegirnir væru í góðu eða mjög góðu ástandi en fyrir tveimur árum síðan var það komið niður í 16%. Við þetta verður ekki unað og hefur þessi ríkisstjórn því stóraukið framlög til vegamála. Á tveimur árum þessarar ríkisstjórnar munu framlög til vegamála hafa aukist um samtals 12,15 milljarða kr. Þessi aukning heldur sér út tíma þessarar fjármálaáætlunar. Með markvissum fjárfestingum og stórauknu framlagi til viðhalds og þjónustu munum við vinna á viðhaldsskuldinni.
Virðulegi forseti. Á málefnasviði fjarskipta og netöryggismála hefur ljósleiðaravæðingu alls þéttbýlis nú verið lokið. Vinna við tvítenginu þéttbýlis á landsbyggðinni, sem áður hafði aðeins eina virka stofntengingu, er komin langt og lýkur á árinu 2027. Þetta eykur netöryggi til muna og ýtir undir jákvæða byggðaþróun. Árið 2027 er stefnt að gildistöku nýrrar stefnu og aðgerðaáætlunar í netöryggi, fáist til þess nauðsynlegt fjármagn. Í kjölfarið verður innleitt mikilvægt regluverk á sviði netöryggis en þar ber hæst ný lög um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra aðila, lög um rafræna auðkenningu og traustþjónustur og lög um netöryggisvottun. Íslenskt samfélag, atvinnulíf og stjórnsýsla eiga mikið undir því að vel takist til við að ná þessum áföngum á sviði öryggis í fjarskiptum.
Heildarframlög til málefnasviðs um sveitarfélög og byggðamál á tímabili áætlunarinnar nema 219 millj. kr. Nú er unnið að endurskoðun byggðaáætlunar og verður hún lögð fyrir Alþingi haustið 2026. Hvað sveitarstjórnarstigið varðar er áfram lögð áhersla á eflingu þess, m.a. með áherslu á sameiningu sveitarfélaga þannig að þau verði betur í stakk búin til að sinna lögbundnum skyldum sínum við íbúa sína óháð staðsetningu. Fyrir Alþingi liggur frumvarp um endurskoðun sveitarstjórnarlaga sem styður þetta markmið og ég treysti því að það fái góða og skjóta afgreiðslu.
Virðulegur forseti. Ég vísa að öðru leyti til greinargerðar með hverju málefni fyrir sig.