fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegi forseti. Fyrst vil ég taka fram að samgönguáætlun veltur ekki á því að innviðafélagið sé of skammt á veg komið. Ég tel að samgönguáætlun verði samþykkt að sjálfsögðu núna í vor. Varðandi innviðafélagið og lífeyrissjóðina, þá er það að samþykkja lögin um innviðafélagið og stofnun innviðafélags sérhluti. Lífeyrissjóðirnir hafa vissulega haft skoðun á því hvernig formið er varðandi innviðafélagið en lífeyrissjóðirnir taka afstöðu til hvers og eins verkefnis. Tökum Sundabraut sem dæmi. HMS eða Skipulagsstofnun, sem er búin að renna inn í HMS núna, mun taka ákvörðun vonandi í maí eða sem allra fyrst um álit sitt á umhverfismatinu. Þá liggur það fyrir. Næst er skipulagsferlið. Ég tel að það þurfi að tala við fjárfesta eða þá sem hafa áhuga á því verkefni og spyrja hvort þeir hafi skoðun á Sundabraut. Hvernig á hún að vera? Á hún að vera í göngum? Á að vera 12 m brú, 30 m brú o.s.frv.? Það er þetta sem skiptir máli fyrir lífeyrissjóðina og fjárfestana, þ.e. hvernig hægt er að gera þessa framkvæmd sem ódýrasta og hafa sem mesta tekjumöguleika af hverri og einni framkvæmd. (Gripið fram í.)Það er það sem skiptir máli en lögin um innviðafélagið segja ekki til um slíkt. Hver einasta framkvæmd skiptir máli, hvernig henni er stillt upp og hversu miklar tekjur er hægt að hafa af veggjöldum af þessari einu framkvæmd.
Það skiptir líka máli hvernig þetta er byggt. Ég átti fund í síðustu viku með franska félaginu Ardian sem á stóran hlut í Mílu, ef ekki 90%, og þeir hafa gert mýmörg svona verkefni og hefðu helst viljað „equity“ eða eignarhlut í framkvæmdinni, ekki bara að kaupa skuldabréf eins og lífeyrissjóðirnir. Þeir munu vonandi skoða þetta ef við kynnum þetta fyrir þeim. En þeir, lífeyrissjóðirnir og fjárfestar vilja skoða hvert einstaka verkefni. Það er þá samningur innviðaráðuneytisins sem setur verkefni inn í innviðafélagið og það verkefni þarf að vera sjálfbært og hafa tekjur. En við erum líka með tekjur af fullbúnum framkvæmdum eins og Vaðlaheiðargöngum og Hornafjarðarfljóti og Ölfusárbrú þegar þar að kemur. Ég tel að Fljótagöngin muni sennilega ekki fara inn í innviðafélagið fyrr en þau eru komin algjörlega á lokasprettinn, (Forseti hringir.) þá verður það varðandi sérleyfi og tekjustreymið.
Ég vona að ég hafi svarað hv. þingmanni hvað þetta varðar. (Forseti hringir.) Það er gríðarlega mikilvægt að við stöndum öll saman að innviðafélaginu. Ég veit að þetta er hugmynd sem allir flokkar hafa haft.
(Forseti (EÁs): Forseti biður hæstv. ráðherra að virða ræðutíma.)