fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir yfirferðina. Já, það eru sannarlega spennandi tímar í sögu samgöngumála á Íslandi og stofnun innviðafélags mun vonandi hleypa nýju blóði og miklu lífi í uppbyggingu samgangna á Íslandi. En mig langar aðeins að ræða við hæstv. ráðherra um uppbyggingu í samgöngumálum með tilliti til orkuskipta og grænna umbreytinga. Nú hef ég nýverið farið um landið og heimsótt ýmis fyrirtæki og þar á meðal tvö skipafélög. Í samtölum mínum við þessi skipafélög birtist sú staða að innviðir í höfnum landsins eru ekki alveg tilbúnir til að taka á móti rafvæddum skipum. Það eru held ég bara tvær hafnir sem hafa nægt rafmagn og þar sem hægt er að stinga í samband. Svo erum við auðvitað að horfa á orkuskipti í bílum sem við keyrum og þungaflutningum og síðast en ekki síst í almenningssamgöngum og mig langar að heyra hvernig ráðherra hyggst stuðla að því að Ísland verði framúrskarandi í þessum málum.