fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Varðandi orkuskiptin vil ég benda á frumvarp ríkisstjórnarinnar, stjórnarfrumvarp um lækkun virðisaukaskatts á bensíni, en í þeim aðgerðum er gert ráð fyrir því að setja að ég held 500 millj. kr. í að auka aðgengi að hleðslustöðvum og einfalda þá vegferð. Það myndi sérstaklega vera fyrir fjölbýlishús og aðra staði sem mun auka aðgengi fyrir slíkar bifreiðar. Við þurfum að vera öflugri í að rafvæða bílaflotann. Varðandi hafnirnar hefur verið unnið í þessu í höfnum landsins. Herjólfur gengur fyrir rafmagni en það breytir því ekki að við þurfum að ganga enn þá framar og er t.d. verkefni hvað það varðar á Siglufirði sem lýtur að smábátum. Þetta er náttúrlega alþjóðleg þróun og það tekur tíma að rafvæða skipin. En það eru ekkert öll skip, ég held að það séu ferjur fyrst og fremst. Við ætlum að byrja þar og svo í minni skipum. Ég held að í fluginu ætti að vera hægt — við erum að taka þátt í verkefni í Skandinavíu hvað það varðar og þá kæmi t.d. flugleiðin Reykjavík/Vestmannaeyjar vel til greina fyrir rafflugvélar af því að það er stutt flugleið, innan við hálftími. Ég held að við séum svolítið á eftir Norðmönnum í þessum efnum og við eigum að stíga enn framar þar sem við erum í rauninni eins og Sádi-Arabía þegar kemur að raforkuframleiðslu í landinu. Við erum seint á ferðinni miðað við Norðmenn. Á tímabili voru til að mynda þrír markaðir með Teslu stærstir í heiminum, Kína, Bandaríkin og Noregur. Við eigum að standa okkur miklu betur hvað þetta varðar í framtíðinni. Það væri hægt að skoða aðkomu Orkusjóðs og líka einfaldlega að bæta meira fjármagni í þennan málaflokk. Einnig væri hægt að opna Hafnabótasjóð fyrir orkuskipti í innviðum. Það er atriði sem við þurfum að skoða enn þá frekar.