157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[19:14]
Horfa

Ása Berglind Hjálmarsdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Mig langar næst að beina sjónum mínum að byggðastefnu og því markmiði okkar að hafa mjög blómlega byggð um allt land. Svo ég vitni aftur í nýlokna hringferð okkar þingflokksins þá fannst mér athyglisvert að sjá það aðdráttarafl sem virðist koma með flottum nýsköpunarmiðstöðvum eins og Stéttinni á Húsavík, og víðar um landið er slíkt að finna. Þar heyrði maður t.d. sögur frá fólki sem kom og ætlaði að prófa að vera í eitt ár en svona umhverfi er svo frjótt og nærandi að fólk bara ílengist og allt í einu, áður en það veit af, er það búið að vera úti á landi að vinna við fjölbreytt störf tengd nýsköpun og ýmsu þvíumlíku í fleiri ár. Við þurfum auðvitað að fá svona verkefni víðar um landið sem tengjast þá einnig dreifðum störfum stofnana landsins, eins og Veðurstofunnar og MAST og fleiri sem eru með starfsstöðvar í svona nýsköpunarmiðstöðvum. Mig langaði aðeins að heyra hvernig hæstv. ráðherra ætlar að tryggja framkvæmd byggðastefnunnar; að hún endurspeglist með enn skýrari hætti í ráðstöfun fjármuna til sveitarfélaga þannig að þau fái raunhæft svigrúm til að byggja upp þjónustu, atvinnulíf og aðdráttarafl til framtíðar.