fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Mig langar að þakka hæstv. innviðaráðherra fyrir framsögu sína áðan. Mig langar að halda áfram með það sem hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson var að ræða um, þ.e. innviðafélagið. Fjármálaráð bendir á í sinni álitsgerð við fjármálaáætlun að mikil og falin áhætta geti verið fólgin í stofnun innviðafélags utan A1-hluta. Það er áætlað að þetta félag verði í C-hluta. Þannig geti áform um stofnun innviðafélags sem fjármagnað sé utan A1-hluta ríkissjóðs dregið úr gagnsæi um raunverulegt umfang opinberra skuldbindinga. Þó gert sé ráð fyrir að félagið fjármagni sig sjálft er líklegt að slík starfsemi njóti ríkisábyrgðar með beinum eða óbeinum hætti. Svo er það nú þannig að reynslan hefur sýnt að þegar ríkisaðilar lenda í fjárhagsvanda þá fellur ábyrgðin að lokum á A1-hluta ríkissjóðs, óháð formlegri flokkun þeirra innan hins opinbera. Við þekkjum dæmi. Nærtækasta dæmið er kannski Íbúðalánasjóður þar sem veruleg áhætta safnaðist upp utan A1-hluta ríkissjóðs sem á endanum féll á ríkissjóð með tilheyrandi kostnaði fyrir skattgreiðendur. Þá bendir fjármálaráð á að sama áhætta geti myndast í sjálfstæðu innviðafélagi og segir í sínu áliti, með leyfi forseta:
„Jafnvel þótt skuldbindingar þess birtist ekki í A1-hluta er líklegt að ríkissjóður beri endanlega ábyrgð ef verkefni ganga ekki eftir. Af þessum sökum er mikilvægt að leggja heildstætt mat á fjárhagslega áhættu og tryggja gagnsæi um mögulegar skuldbindingar ríkissjóðs áður en slík félög eru sett á fót.“
Ég spyr: Mun innviðaráðherra taka mið af þessum mikilvægu og alvarlegu ábendingum fjármálaráðs varðandi áætlaða stofnun innviðafélags um stærri samgönguframkvæmdir? Verður lagt heildstætt mat á fjárhagslega áhættu og gagnsæi tryggt vegna mögulegra skuldbindinga ríkissjóðs áður en innviðafélag verður stofnað? (Forseti hringir.) Mun þetta félag njóta ríkisábyrgðar?