fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Varðandi innviðafélagið þá erum við og íslenska ríkið ekki að finna upp hjólið. Það er ekki þannig. Við erum ekki að fara að gera neitt sem aðrir hafa ekki gert áður. það sem er öðruvísi á Íslandi er dreifbýlið. Það búa 82% landsmanna á Hvítár-Hvítársvæðinu og svo 8% á Akureyrarsvæðinu eða Eyjafjarðarsvæðinu. Það er okkar vandamál, stóra vandamál. Við erum að horfa til fyrirtækis eins og Sund & Bælt í Danmörku, við horfum til Færeyja og fleiri ríkja, líka hvað t.d. Nye veier í Noregi hafa verið að gera. Það er svona fjármögnun úti um allan heim. Ég var á fyrirlestri í morgun þar sem kom fram að gagnabanki Oxford-háskóla er með 20.000 framkvæmdir en fyrirlesari var metsöluhöfundur bókarinnar How Big Things Get Done, á góðri íslensku, afsakið að ég noti ensku hérna. Við erum nú þegar með innviðafélög. Isavia og Landsnet eru innviðafélög. Við ætlum að búa til innviðafélag um samgönguframkvæmdir. Þetta eru C-félög, fyrir utan A1-hlutann eins og hér hefur komið fram. Tekið er að sjálfsögðu við öllum góðum ábendingum og þessar spurningar eru í raun til fjármálaráðherra. Félagið á að heyra undir hann. En ég verð að segja alveg eins og er að ég get ekki séð að við getum grandskoðað alla áhættu og metið öll verkefni og hvernig fyrirtækið er áður en við stofnum félagið, áður en það er sett á fót, það er ekki hægt. Við verðum að byrja á að stofna félagið, setja formið utan um það og það sem skiptir hérna algeru máli er hvaða verkefni eru sett inn í það. Það er gert með samningum innviðaráðherra og félagsins og svo samningum fjármálaráðherra við félagið hinum megin, t.d. varðandi Fljótagöngin, sem munu reyndar sennilega koma inn í það við síðustu greiðslu á Fljótagöngum. Að sjálfsögðu munu allir fjárfestar þurfa að horfa á tekjustreymið af þeim innviðum sem fara inn í félagið. Félagið verður mjög svipað félaginu Sund & Bælt. Við erum með svokallað S-10 að ég held, þ.e. sjálfstætt félag, og svo S-13. (Forseti hringir.) Það eru t.d. Fljótagöng, þau verða fjármögnuð af ríkinu fyrst og fremst. Það er einfaldlega ekki nógu mikil umferð. (Forseti hringir.) Hins vegar mannvirki á Hvítár-Hvítársvæðinu, þau á að vera hægt að fjármagna með veggjöldum. Við erum t.d. í vandræðum með, í útjaðri þess, það sem lýtur að Ölfusárbrú en það er búið að ganga frá því, það var gengið frá því á síðasta kjörtímabili.
(Forseti (EÁs): Forseti vill taka fram að gefnu tilefni að þingmálið er íslenska.)