fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra, Eyjólfi Ármannssyni, kærlega fyrir hans yfirferð yfir þau málefnasvið sem undir hann heyra. Hv. þm. Ingibjörg Davíðsdóttir spurði út í almenningssamgöngur og það sem ég vildi spyrja um tilheyrir þeim málaflokki, enda er innanlandsflugið án efa hluti af almenningssamgöngukerfi okkar Íslendinga. Í dag birtist frétt um að ráðherra hygðist ráðast í endurskoðun á Loftbrúnni sem ég hef sjálfur talað fyrir svolítið lengi. Það er náttúrlega mjög gott að þessu hafi verið komið á á sínum tíma til að tryggja íbúum landsbyggðarinnar ódýrari fargjöld til höfuðborgarsvæðisins þar sem búið er að þjappa saman mjög mikið af opinberri þjónustu, menningu o.s.frv. En ég hef alltaf haft einhverjar efasemdir um að besta leiðin til að gera það sé að niðurgreiða með prósentu, þá í þessu tilfelli þjónustu hjá fyrirtæki í einokunarstöðu. Það hefur skilað sér í því, að ég best veit, að verðlagið hefur hækkað en að sjálfsögðu er samt hugmyndin góð. Ég hef alltaf velt fyrir mér hvort það sé einhver betri útfærsla til þannig að í ljósi þess að þetta hefur verið til umfjöllunar í dag, möguleg endurskoðun á Loftbrúnni, væri mjög gott að heyra frá hæstv. ráðherra hvað hann sér fyrir sér í fyrirhugaðri endurskoðun á henni og hvort það sé nokkuð þannig að verið sé að ráðast í þessa endurskoðun í sparnaðarskyni. Að því er ég best veit þá fóru rúmlega 750 milljónir á seinasta ári í Loftbrúna og þó, eins og ég segi, að ég styðji endurskoðun þá náttúrlega myndi ég ekki vilja sjá það gert í sparnaðarskyni heldur til að tryggja það að niðurgreiðslan skili sér betur til þeirra sem á henni þurfa að halda.