fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Loftbrúin er áhugavert fyrirbæri. Það er borgað sem prósenta af miðum eins og hér hefur komið fram. Við erum að endurskoða þetta. Þegar brúin var sett á laggirnar þá horfðum við til skosku leiðarinnar, eins og þetta var gert í Skotlandi. Ég hefði sjálfur haldið að við ættum að horfa til Norðmanna sem styrkja flugið og greiða niður með öðrum hætti, hvort þeir kaupi sætafjölda um borð eða ekki sem síðan flugfélagið getur þá selt í að sjálfsögðu, en það ætti þá að lækka miðann. En þetta hefur verið þannig að peningar hafa ekki dugað út árið, síðustu ár hafa fjárheimildir ekki dugað út árið og hefur verið þörf á að koma til móts við það með fjárauka. Þessi staða er náttúrlega ekki viðunandi. Ég tel að slík niðurgreiðsla þar sem tekin er föst prósenta skili sér ekki nægilega vel, svo það liggi alveg fyrir. Við erum að skoða aðrar leiðir sem eru skilvirkari til að nýta fjármagnið betur og svo að það sé meiri fyrirsjáanleiki. Ég gæti séð fyrir mér að þetta yrði t.d. föst krónutala á flugmiða, ég held að það gæti verið lendingin en ég skal ekki fullyrða neitt um það.
Loftbrúin er mikilvægt úrræði í tengingu byggða landsins við höfuðborgarsvæðið og hefur skipt miklu fyrir innanlandsflugið og opnað það fyrir fleirum en nýttu það áður. Þannig er bæði tekjulægra fólk og yngra fólk að fljúga meira núna en fyrir Loftbrú svo því sé haldið til haga. Þessi endurskoðun sem slík er ekki gerð í sparnaðarskyni slík en við verðum að nýta peningana með öðrum hætti. Ég tel að þessi prósentuhækkun hafi haft svolítil snjóboltaáhrif en í endurskoðuninni verður einblínt á að nýta fé betur og að það dugi út árið. Það skapar fyrirsjáanleika.