157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[19:32]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra, Eyjólfi Ármannssyni, fyrir hans svar við mínum vangaveltum. Ég er í grunninn sammála hæstv. ráðherra en ég vona svo innilega að þetta verði ekki til þess að framlög til Loftbrúarinnar lækki heldur að við mögulega breytum útfærslunni þannig að hún nýtist betur og jafnvel nýtist fleirum. Það hafa verið uppi hugmyndir um það hér m.a. að útvíkka Loftbrúna til að börn gætu nýtt sér fleiri leggi, m.a. vegna ferðalaga sem tengjast íþróttum o.s.frv. Ég held að það sé allt saman gott og gilt þannig að ég vona innilega að við séum ekki að fara að horfa fram á að þessar 750 milljónir — að það verði lægri upphæðir á tímabili fjármálaáætlunar, þó að ég styðji það að það verði gerð endurskoðun til að mögulega gera útfærsluna betri.

Ég vildi í síðara andsvari fá að nýta tækifærið og spyrja hæstv. ráðherra út í hver reynslan hingað til hefur verið af nýjum jöfnunarsjóði. Ég veit að tvær mínútur eru lítill tími til að fara yfir það en við samþykktum ný lög um jöfnunarsjóð síðasta sumar og það væri fróðlegt að heyra frá ráðherra hver reynslan af nýju lögunum hefur verið hingað til og hvernig hann horfir til framtíðar í þeim efnum á tímabili fjármálaáætlunar.