157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[19:48]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Varðandi innviðafélagið þá er gríðarlega mikilvægt að frumvarpið verði samþykkt. Það er gríðarlega mikilvægt. Þá getum við stofnað félagið eins og önnur hlutafélög í landinu í þessu máli á grundvelli þessara laga. Síðan skiptir öllu máli, eins og kemur fram í frumvarpinu, að innviðaráðherra getur sett eignir inn í félagið. Það eru t.d. eignir eins og Hornafjarðarfljót, Ölfusárbrú og Vaðlaheiðargöng, þ.e. það er tekjustreymið af þessum eignum sem innviðafélagið mun njóta. Það skiptir miklu máli.

Varðandi að þetta sé sérfélag þá þarf það að vera fjárhagslega sjálfbært. Það eru eignir sem t.d. koma þar inn, vegaframkvæmdir, mannvirki sem koma þar inn eins og Sundabraut. Það á að vera fjárhagslega sjálfbært félag. Það er S-11 samkvæmt ESA 2010-staðlinum. Fljótagöng eru það ekki þannig að þau verða byggð á kostnað ríkisins og fara sennilega inn í félagið á síðustu stigum og þá, af því að það verða veggjöld þar, mun félagið sjá um innheimtu þeirra veggjalda og fá sem tekjur. Þannig fær innviðafélagið sínar tekjur, af framkvæmdum sem búið er að ljúka og af framkvæmdum sem á að fara í. Það er málið í þessu og mikið af þessum framkvæmdum, eins og C-félagið, verða aðallega á Hvítár-Hvítársvæðinu. Við sjáum t.d. Vaðlaheiðargöng, þau lentu í fanginu á ríkinu, þau eru á Eyjafjarðarsvæðinu þar sem 8% íbúanna búa. Við lentum í erfiðleikum á síðasta kjörtímabili með Ölfusárbrú og hún er á jaðri þessa svæðis. Eins og ég sagði áðan, þá fer þetta allt eftir þeim eignum sem fara inn í félagið.

Varðandi þekkingu á veghaldi og þekkingu á vegaframkvæmdum þá er sú þekking mikil á Íslandi. Hún er mikil hjá Vegagerðinni og það eru líka komin önnur fyrirtæki eins og Betri samgöngur sem standa í samgönguframkvæmdum á höfuðborgarsvæðinu. Við búum því yfir mikilli þekkingu og áratugareynslu. Ég get ekki annað en haft orð á þeirri ráðstefnu sem Vegagerðin hélt í dag, sem var frábær ráðstefna og gríðarlega merkilegir fyrirlesarar. (Forseti hringir.)

Að lokum varðandi Póstinn þá erum við að hefja markaðskönnun hjá Póstinum varðandi alþjónustuna.