fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða spurningu. Við kynntum jú fyrir skemmstu aðgerðaáætlun gegn brotastarfsemi á vinnumarkaði. Þetta er mjög metnaðarfull áætlun sem er unnin í góðu samstarfi við aðila vinnumarkaðarins og gríðarlega mikilvægt verkefni. Ég vænti þess að í maí næstkomandi skili starfshópur af sér tillögum um viðurlög og févíti varðandi launaþjófnað sem er auðvitað gríðarlega mikilvægt. Ég hlakka mikið til að vinna það áfram með okkar gömlu félögum í verkalýðshreyfingunni og sömuleiðis líka að skerpa á keðjuábyrgðinni þar sem meiri ábyrgð yrði sett á frumverktaka. Þetta er auðvitað mjög stórt mál og skiptir gríðarlega miklu og mun væntanlega líka létta á Ábyrgðasjóði launa. Varðandi hlutdeildarlánin þá var ótrúlegt að sjá hvað breytingarnar sem þingið samþykkti í desember höfðu mikil áhrif. Bæði þessi innspýting inn í kerfið, það að úthlutun hlutdeildarlána yrði mun tíðari og þá að sama skapi fyrirsjáanlegri, og líka að geta gert það sem hlutdeildarlánakerfinu var ætlað í grunninn og í upphafi, þ.e. að þeirri eftirspurn sem kæmi inn í hlutdeildarlánakerfið yrði svarað með auknu framboði. Það var tilgangur kerfisins á sínum tíma en því var breytt í þinglegri meðferð þannig að hlutdeildarlánakerfið hefur aldrei virkað sem skyldi fyrr en breytingarnar voru gerðar í desember síðastliðnum. Það sést á margföldun þeirra umsókna, og afgreiðslu þeirra, sem hafa borist síðan þá og sömuleiðis líka á fyrstu uppbyggingarsamningunum í sögu kerfisins, og fleiri eru á leiðinni.