fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Til að byrja með myndi ég ekki kalla það blekkingu að við séum með mjög háleit markmið, að ná niður biðlistum og stórauka framboð á hjúkrunarrýmum, sem hafa auðvitað verið ein sorgarsaga síðustu ár og áratugi. Varðandi þá framkvæmdaáætlun sem hefur verið birt þá er hún fullfjármögnuð og gengur út á það að byggja hér rúmlega 1.500 ný rými á tímabilinu. Þetta er fjármagnað. Við ætlum að reyna að gera enn betur en auðvitað getur það tekið einhvern tíma að koma áætlunum af stað. Það getur gerst, það þekki ég af vettvangi húsnæðismála, það getur tekið lengri tíma en áætlað er að byggja upp rými, sérstaklega þegar staðan er eins og hún hefur verið.