157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[20:34]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Herra forseti. Nú hef ég áhyggjur af því að hæstv. ráðherra viti ekkert um málaflokkinn. Hann nefnir hér að ríkisstjórnin sé með háleit markmið. Það er gott og blessað. En það er bara allt annað að plata og segja að það verði engir biðlistar árið 2029. Það er bara ekki rétt, virðulegur forseti. Miðað við gögn ríkisstjórnarinnar verða 1.674 aðilar á biðlista árið 2029. Það er hægt að hafa alls konar háleit markmið en hættið að plata og segja að það verði engir biðlistar árið 2029.

Í seinni spurningu langar mig til að ræða íbúðir í eigu ríkisins. Hæstv. ráðherra leggur mikla áherslu, hvað varðar einstaklinga sem eiga kannski aukaíbúð, að gera allt til að þeir einstaklingar þurfi annaðhvort að borga hærri skatta eða selja eignirnar. Ríkisstjórnin vill ekki að eignir séu fjárfestingarkostur af því að það vantar eignir. En hvað á ríkið margar eignir sem eru í notkun fyrir hælisleitendur á Íslandi og þá sem koma hingað í leit að alþjóðlegri vernd? Þetta fólk er kannski í íbúðunum í tvö ár og það liggur allan tímann fyrir að það á ekki rétt á vernd. Hvernig væri að taka til í þeim málaflokki og koma í veg fyrir að fólk sem mun aldrei hljóta vernd, þegar það liggur fyrir, sé að teppa eignir? Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra: Á hversu stórum skala er þessi eignaflokkur hjá ríkinu? Veit hann hvað þetta eru margar íbúðir? Ætlar hæstv. ráðherra að gera eitthvað til að koma þessum íbúðum í sölu frekar en að skattpína venjulegt fólk hér á Íslandi?