157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[20:39]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Mig langar að ræða nokkur mál við hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra, Ragnar Þór Ingólfsson. Ég byrja hér á máli sem hefur verið mikið rætt í mínu kjördæmi, Norðvesturkjördæmi, og tengist Borgarnesi og sveitarfélaginu þar, sem er kostnaður sem er að falla á sveitarfélögin vegna samræmdrar móttöku flóttafólks. Það var alveg ljóst þegar opnaðar voru hér dyrnar, og Alþingi var sammála um það og Evrópa öll í raun og veru, fyrir flóttafólki frá Úkraínu er stríðið hófst — og sveitarfélög um allt land voru hvött til að koma með í þetta verkefni og finna húsnæði og koma þessu fólki til aðstoðar, sem nokkur þeirra gerðu, m.a. Borgarbyggð sem hefur nú setið uppi með verulegan kostnað vegna þessa þar sem þessir einstaklingar sem gista innan sveitarfélagamarkanna, flestir á Bifröst, eru nú komnir á framfærslu sveitarfélagsins. Ég sé hér á bls. 175 í frumvarpinu niðurfellingu á tímabundnum framlögum vegna 15. gr. um félagsþjónustu sveitarfélaga upp á rúma 2,7 milljarða rúma sem mér þætti vænt um að fá skýringar á hver er og sömuleiðis þessar 400 milljónir vegna samræmdrar móttöku flóttafólks. Er ekkert í kortunum um að koma til móts við þessi sveitarfélög eða á að skilja þau eftir í þessum mikla vanda sem þau eru í einfaldlega vegna þess að þau voru svo góðhjörtuð og almennileg að koma til móts við ríkið þegar það var óskað eftir því?