157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[20:41]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Ragnar Þór Ingólfsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir góða spurningu. Jú, það er rétt að þarna var um tímabundið framlag að ræða en niðurfellingin í fjármálaáætlun eða lækkun framlaga er að hluta til vegna þess að um minni þörf á fjárframlögum er að ræða að hluta til líka. Það sem ég vil segja er að við höfum fundað með Borgarbyggð og við skiljum þann vanda sem hefur verið að byggjast þar upp, þá á Bifröst. Við funduðum nýlega til að leita lausna. Við höfum auðvitað verið að aðstoða Borgarbyggð, m.a. í gegnum Vinnumálastofnun og fleiri úrræði sem við höfum nú þegar úr að spila. En ég tek undir með hv. þingmanni að betur má ef duga skal. Við þurfum að finna framtíðarlausn. Staðan er ekki einföld, hún er margflókin og ekki einfalt að finna eina lausn varðandi stöðuna sem er í kjördæminu. Það sem ég get sagt er að við tökum stöðuna mjög alvarlega og við erum að ræða og erum í lausnamiðuðu samtali við fulltrúa sveitarstjórnar um varanlega lausn fyrir Borgarbyggð.