fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir síðari spurninguna. Ástæðan fyrir því að þetta tímabundna framlag er að falla niður er tvíþætt. Þetta var gert í kjölfar kjarasamninga 2024 um aukin framlög á samningstímanum. Ég myndi ekkert sjá því til fyrirstöðu að slíkt samkomulag yrði gert aftur í þeim næstu sem eru lausir 2028, en kannski grundvallarvandinn er að þessi stofnframlög hafa ekki verið að ganga út, hvorki þessi auknu stofnframlög né önnur. Það er fyrst og fremst vegna verkefnastöðu þeirra húsnæðisfélaga sem hafa verið að byggja inn í almenna íbúðakerfið. Þar liggur grundvallarvandinn, ekki í upphæð stofnframlaganna sjálfra, fyrst og fremst að þau hafa einfaldlega ekki verið að ganga út. Það er okkar markmið að reyna að koma með innspýtingu inn í þessa mikilvægu uppbyggingu og eitt af því sem við erum að gera er að hér liggja fyrir þinginu breytingar á lögum um almennar íbúðir þar sem við erum að leggja til hækkun á stofnframlögum til að auðvelda þeim félögum sem byggja inn í almenna íbúðakerfið að byggja meira og að sjálfsögðu þá að stofnframlögin bara hreinlega gangi út.
Sömuleiðis erum við vonandi fljótlega að fara að kynna uppbyggingu á ríkislóðum. Sömuleiðis eru líka í þessu frumvarpi heimildir til veitingar stofnframlaga til breytingar á húsnæði eins og t.d. ríkiseignum, eða atvinnuhúsnæði í íbúðir, þannig að við erum að gera ansi margt til að reyna að tryggja að stofnframlögin fari út. Komi hins vegar til þess að við þurfum að auka þau þá munum við svo sannarlega gera það. En eins og staðan er núna er verkefnastaða þeirra félaga, helst vegna lóðaskorts, slík að þessi framlög hafa ekki gengið út sem skyldi.