157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[20:52]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hans fyrra svar. Það kemur svo sem ekkert á óvart að hæstv. ráðherrum og hv. þingmönnum í Flokki fólksins finnist svo sem allir hafa rangt fyrir sér, hvort sem það eru helstu hagfræðingar, Seðlabanki Íslands, fjármálaráð eða aðrir. Þeir hafa allir rangt fyrir sér. Það er eiginlega orðið svolítið ískyggilegt þegar í rauninni allir sem eitthvert vit hafa á þessum málum hafa rangt fyrir sér. Þá held ég að sé kominn tími á að líta í eigin barm og líta í spegilinn. En í umsögn fjármálaráðs segir líka:

„Hámark raunvaxtar útgjalda stöðugleikareglu var ákvarðað áður en vísitölutenging almannatrygginga var lögfest. Það útgjaldasvigrúm sem stjórnvöld töldu sig hafa áður en lögin voru samþykkt er ekki lengur til staðar. Fjármálaráð telur að vísitölutenging almannatrygginga sé forsendubrestur sem kalli á endurskoðun útgjaldaþaks stöðugleikareglu til lækkunar.“

Forsendubrestur sem kalli á endurskoðun. Það er ekki tekið vægt til orða hér af fjármálaráði. Færustu hagfræðingar landsins eru að benda á hvaða afleiðingar þetta hefur, en kannski er þetta allt bara einhver vitleysa og misskilningur eins og allt annað sem hefur komið frá fjármálaráði, Seðlabankanum, Samtökum atvinnulífsins og verkalýðsforystunni þar sem hæstv. ráðherra ætti nú að þekkja ágætlega til.

Þar sem ég hef nú meiri tíma þá langar mig að spyrja hæstv. ráðherra hvort hann telji ekki að það sé kominn tími á það að við vinnum vinnumarkaðsmódelið í átt við það sem er í Skandinavíu, að útflutningsgreinarnar ráði för og síðan fylgi opinberi geirinn á eftir og fari aldrei yfir það sem almenni markaðurinn er búinn að vinna að. Það (Forseti hringir.) hlýtur að liggja í hlutarins eðli að ef framleiðni útflutningsgeirans stendur ekki undir meiri launahækkunum (Forseti hringir.) þá er opinberi geirinn líklega ekki að standa undir meiri launahækkunum. Það eru þessar tvær spurningar.