fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Varðandi uppbygginguna á landsbyggðinni vildi ég kannski bæta við þær áskoranir sem við höfum verið að horfa til að það eru oft smærri bæjarfélög þar sem töluvert mikið af eignum standa tómar, eru mögulegar til skammtímaútleigu, til ferðamanna eða standa einfaldlega tómar. Ég skil það mjög vel þegar sveitarfélög eru kannski að ráða til sín fólk, hvort sem það er til kennslu eða annarra starfa, og geta ekki mannað stöður bara vegna skorts á húsnæði. Oft er ekki um að ræða margar einingar sem þarf til eða margar íbúðir heldur kannski örfá hús, hvort sem það er raðhús eða litlar íbúðir. En ég bind miklar vonir við að við náum árangri þar.
Varðandi öryggisvistunina þá er uppbyggingin uppi á Hólmsheiði fullfjármögnuð. Við erum að ganga frá í sjálfu sér öllu í kringum lóðamál og fleira þannig að það sé hægt að tryggja að þessi uppbygging fari af stað. Það er búið að skrifa undir viljayfirlýsingu um lóðina þar. Hvað varðar úrræðið á Akureyri er ekki hægt að svara því á þessu stigi með fullri vissu hvort það verði áfram eða ekki. Ég tel sjálfur fulla þörf á að slíkt úrræði sé til staðar fyrir norðan og mun sannarlega beita mér fyrir því að svo verði áfram. Ég get ekki fullvissað hv. þingmann um hvort svo verði en ég mun svo sannarlega beita mér fyrir því.