fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegur forseti. Það er ánægjulegt að taka þátt hér í lok umræðunnar um fjármálaáætlun til þess að draga fram það sem stendur kannski upp úr. Það er ekki endilega mest rætt en það sem ný ríkisstjórn hefur gert er að styrkja umgjörð opinberra fjármála, og ríkisins alveg sérstaklega, með innleiðingu stöðugleikareglu; með því að sýna í verki núna þegar fjármálaáætlun er lögð fram öðru sinni að þar eigi að ná þeim markmiðum sem sett voru fram í fyrstu fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar um að ná hallaleysi á næsta ári. Því þarf auðvitað að fylgja eftir í fjárlögum í haust en það verður gert. Það kallar á aðhald. Það sem einkennir aðferðafræðina er að það er skýrt skilgreind ábyrgð hjá hverju ráðuneyti til að ná þessu aðhaldi þannig að það er ekki sett fram út í loftið.
Hér eru býsna skýrar áherslur eins og þingmenn og aðrir hafa fylgst með í umræðum um málaflokka. Það er áhersla á heilbrigðismál. Það er auðvitað umtalsverð áhersla á kjör öryrkja og ellilífeyrisþega. Það er líka áhersla á rannsóknir, þróun, nýsköpun, menntamál og fleiri hluti sem til framtíðar horfa en einnig á fjárfestingar í innviðum; að borga innviðaskuld en líka að sækja fram og leggja grunn að framtíðarhagvexti. Þetta er allt hluti af heildarmynd og hún gengur ekki upp ef ekki er haldið vel utan um fjármálin í heild sinni. Í áætluninni birtist metnaður til að gera einmitt það.
Varðandi umfjöllun hér um umsögn fjármálaráðs, sem hefur verið nokkuð áberandi, er hún góð, gild og gagnleg og við fórum einmitt ítarlega og vel yfir hana í fjárlaganefnd í morgun. Þar er af ýmsu að taka en það er ekki hægt að draga strikið yfir það að fjármálaráð fagnar því að það eigi að standa við markmiðin sem sett voru í upphafi kjörtímabils, það fagnar hallaleysinu. Fjármálaráð hefur líka stutt innleiðingu stöðugleikareglunnar þó að stundum mætti halda annað við að hlusta á umræður hér í þingsal. Það er með ábendingar varðandi útfærsluna og það er sjálfsagt að fara yfir það. Fjármálaráð styður líka tilkomu innviðafélags til að flýta uppbyggingu innviða, er með ábendingar um hvað þurfi að hafa í huga og þær eru um margt prýðilegar og í ágætu samræmi við frumvarp um innviðafélag sem komið er fram.
Ég held að þingið sé á góðri leið. Það þarf auðvitað að vinna í þessu. Þetta er ekki átaksverkefni heldur samfelluverkefni að snúa við hallarekstri ríkisins. Hann hefur verið óslitinn frá 2019 og uppsafnaður samtals um 830 milljarðar, eins og lesa má í þingsályktunartillögunni og heyra mátti í kynningu fjármálaráðherra á henni. Ég held að það ættu allir að geta fagnað því að þessari stöðu hafi verið snúið við, ekki af einhverju offorsi heldur af skynsemi og ábyrgð gagnvart þeim mikilvægu málaflokkum sem ríkið vinnur að og er treyst fyrir hverju sinni með sameiginlegum sjóðum landsmanna.