fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegur forseti. Ég vil nú byrja á því að segja það að það hefur verið áhugavert að hlusta á þessar umræður hérna í dag um fjármálaáætlun og ljóst að sitt sýnist hverjum. Ég held að það sé hárrétt hjá hv. þm. Grími Grímssyni að minni og meiri hluti horfi svolítið á þetta með sitthvorum gleraugunum. Ég get alveg tekið undir með hv. þingmanni, kannski væri fróðlegt að skipta aðeins um gleraugu og athuga hvernig þessi fjármálaáætlun lítur út. Ég ætla ekki að standa hér og segja að það sé ekkert gott í þessari fjármálaáætlun, alls ekki. Ég vona svo sannarlega, eins og ég sagði þegar ég átti orðastað við hæstv. forsætisráðherra hér fyrr í kvöld, að við náum árinu 2027 í plús og við séum komin á beinu brautina í efnahagsmálum. Það er hins vegar mjög margt, virðulegur forseti, sem bendir til þess að svo sé ekki.
Ég ætla aðeins að fara yfir þessa punkta sem ég tek út úr umræðunni eftir daginn í dag og daginn í gær. Ég talaði í upphafsorðum mínum um óvissuna. Mér finnst bara mikilvægt að við einhvern veginn ámálgum hana. Eins og ég hef verið að nefna þurfum við að skoða fjárlögin, nefndarálit meiri hluta fjárlaganefndar, fjármálaáætlun 2025–2030 og síðan fjármálaáætlun sem er lögð fram núna og þá er alveg ljóst — og ég held að það sé öllum ljóst og á að vera öllum ljóst — að þær tölur sem þar birtast eru ekki í samræmi við þær áætlanir sem eru lagðar fram í þessari fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031 einfaldlega vegna þess að staðan er verri en menn reiknuðu með. Staðan hefur ekki gengið eftir. Þau áform sem hæstv. ríkisstjórnin var með hér í upphafi árs 2024/2025 hafa ekki gengið eftir og því þarf að bregðast við því. Ég hef sagt það hér og segi það aftur að ég fagna því að það séu þó komnar tillögur til að bregðast við því lengi vel stóðum við hér í stappi og áttum orðastað við bæði hæstv. forsætisráðherra og hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra um hvort það væri komin þörf á aðgerðum. Það voru misvísandi svör sem við fengum. Við erum komin með aðgerðir. Eru þær nægjanlegar? Nei, ég held að þær séu ekki nægjanlegar. En það er þá alla vega búið að viðurkenna að planið er ekki að virka. Það er það sem ég tek kannski úr þessari umræðu.
Það sem mig langar líka að nefna hérna er álit fjármálaráðs. Það er alveg rétt sem hv. þm. Grímur Grímsson sagði hérna áðan; auðvitað er það kannski eðli málsins samkvæmt að fjármálaráð mun benda á það sem betur má fara í frekara mæli en það sem vel er gert. Hins vegar er staðan, og við verðum bara að viðurkenna það og taka því eins og það er, að fjármálaráð er skipað fagaðilum til að fara yfir þessa áætlun og gefa okkur álit á henni. Það sem mér finnst miður, og hefur fundist hér eftir umræðu dagsins í dag og dagsins í gær, er að allt of margir þingmenn meiri hlutans hafa komið hér upp, jafnvel ráðherrar, virðulegur forseti, og gert lítið úr þessum áhyggjum fjármálaráðs. Það er bara einhvern veginn ekki þannig sem hlutirnir eiga að virka. Ég held að það sé í lögum um opinber fjármál þar sem kemur fram að fjármálaráð eigi að fara yfir áætlunina og gefa álit. Ef menn hefðu ætlað það þannig að fjármálaráð ætti að gefa álit á fjármálaáætluninni sem menn ættu síðan ekkert að gera með eða ekkert að taka mark á þá held ég að þeir sem skrifuðu lög um opinber fjármál hefðu bara sleppt því að hafa þessa klausu þarna inni og sleppt því að eyða tíma þessa ágæta fólks í að fara yfir þetta plagg og koma með ábendingar.
Punkturinn minn með þessu, virðulegur forseti, er einfaldlega sá að okkur ber að taka mark á þessum ábendingum. Okkur ber að fara í þá vinnu í fjárlaganefnd að sjá hvaða aðgerðir er hægt að fara í inni í áætluninni til þess að koma til móts við þær áhyggjur sem þar er lýst. Þar er verið að tala um vísitölutryggingu almannatrygginga, stöðugleikaregluna, óútfærðar afkomubætandi aðgerðir sem ég gæti fjallað um í allt kvöld en hef nú ekki nema fjórar og hálfa mínútu þannig að ég ætla ekki að eyða miklum tíma í það. En það er alveg ótrúlegt að hlusta á hv. þingmenn og hæstv. ráðherra tala um að það sé allt útfært og fjármagnað þegar það er það ekki í raun og veru. Það er algerlega sitthvor hluturinn, alla vega í mínum huga, að koma hér fram og segjast vera með aðhaldskröfu upp á 107 milljarða sem sé útfærð, að fullu útfært aðhald upp á 107 milljarða, þegar það eina sem er búið að gera í rauninni er að deila því niður á ráðuneyti. Svo spyr maður ráðherrana hvernig eigi að ná þessu aðhaldi og þá segjast þeir ekki vera komnir svo langt eða að þetta sé á seinni tíma áætlunarinnar þannig að þeir séu ekki farnir að hugsa út í þetta. Þetta er ekki útfært aðhald að mínu viti, virðulegur forseti. Mér finnst ábyrgðarlaust að tala með þessum hætti.
Mig langar að ræða aðeins meira en fjármálaráð. Eins og ég sagði áðan er ýmislegt sem hefur vakið athygli mína hér í þessari umræðu. Af því að við höfum ekki mikinn tíma, virðulegur forseti, þá ætla ég að reyna að stikla á stóru. Það sem ég hef orðið mestar áhyggjur af, og hafði reyndar áhyggjur af fyrir, er stofnun þessa innviðafélags og samgöngur. Þar held ég að sé að teiknast upp mjög skrýtin mynd. Þau svör hæstv. innviðaráðherra sem var hér áðan eru ekki til þess fallin að vekja traust í þessari vegferð ríkisstjórnarinnar með þetta innviðafélag. Ég er nú svo heppinn að vera í efnahags- og viðskiptanefnd sem er með þetta mál til umfjöllunar og ég hlakka til að vinna það áfram. En ég sé ekki að í raun og veru sé búið að hugsa það fyrirbæri til enda. Ég held að við séum í alvörunni að ræða um það að það er komið frumvarp inn á Alþingi sem er komið inn í efnahags- og viðskiptanefnd sem menn vita í raun og veru ekki hvernig þeir ætla að útfæra í raunveruleikanum og hvernig það mun nýtast okkur. Það er alveg ljóst að það eru eingöngu samgöngumannvirki hér næst höfuðborgarsvæðinu sem munu geta fallið undir arðsemiskröfu slíks félags. Þá eru eftir framkvæmdirnar á landsbyggðinni. Ég nefni hérna Fljótagöng sem dæmi sem menn hafa verið að tala um að eigi að koma inn í eitthvert innviðafélag. En hvernig getur það gengið upp ef arðsemi í slíku félagi er ekki nægjanleg til að það geti farið inn í innviðafélag og það er ekkert um það í samgönguáætlun að það eigi að setja fjármagn í þessi göng en það er samt á dagskrá í samgönguáætlun? Þetta gengur ekki upp í hausnum á mér. Það er einhvers staðar lapsus í þessu. Ég hef verulegar áhyggjur af þessu og við þurfum að fá betri skýringar á þessu í efnahags- og viðskiptanefnd um hvað menn séu komnir langt með þetta félag og hvernig í ósköpunum menn ætla að klára sig af því. Ég heyri það alla vega í mínu nærumhverfi norður í landi, ég tala nú ekki um í Fljótum í Skagafirði þar sem þessi göng eiga nú að tengjast við Siglufjörð, að það er mikill spenningur og eftirvænting meðal fólksins. Ég óttast að þetta verði því miður ekki að veruleika miðað við þessar tölur og þessa umræðu sem hefur verið hér í dag.
En ég er runninn út á tíma, virðulegur forseti. Ég sé að hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra er mættur í hús. Ég vil bara þakka fyrir þessa umræðu hér í dag. Hún hefur verið að mörgu leyti ágæt og upplýsandi. Ég hlakka til vinnu í fjárlaganefnd sem ég veit að á eftir að verða enn þá meira upplýsandi og áhugaverð að mjög mörgu leyti.