umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Umsóknin var á sínum tíma samþykkt á Alþingi Íslendinga. Hér kom fólk sér ekki saman í þessum sal um að draga hana til baka. Það er reyndar ekki aðalatriði þessa máls. Mér finnst merkilegt í þessari umræðu að við getum ekki bara leyft okkur að vera ósammála um það hvort við eigum að ganga inn í Evrópusambandið eða ekki, að við þurfum að vera ósammála um formið á öllu og fólk sé sakað um blekkingar og einhverja aðra vegferð. Ég ber virðingu fyrir því að hv. þingmaður hafi ekki áhuga á Evrópusambandinu. Það er bara gott og vel. En auðvitað, virðulegur forseti, hefði þessi spurning ekki verið orðuð með þessum hætti í þingsályktunartillögu ef það væri ekki fótur fyrir því og skoðun ríkisstjórnarinnar og meiri hlutans að þetta snerist um að halda viðræðunum áfram. Það segir sig sjálft að það er augljóslega útgangspunkturinn, enda hefur það verið staðfest víða annars staðar að umsóknin er gild. En í staðinn fyrir að ræða efni máls, í staðinn fyrir að ræða um hvort fólk vilji ganga inn í Evrópusambandið eða ekki, þá snýst allt um einhverja umræðu um hvort eitthvað sem einhver sagði í Evrópu sé mark á takandi eða ekki. Ég er á þeirri skoðun að það beri að hlusta á það sem embættismenn og forsvarsmenn Evrópusambandsins hafa sagt, að umsóknin er enn þá gild, enda kom fólk sér aldrei saman í þessum sal um að draga hana til baka. En ég vil líka segja að mér finnst ekki gott að umræðan sé þar, í aðdraganda þessarar atkvæðagreiðslu, að fólk leggi mismunandi skilning í spurninguna. Þess vegna held ég að það sé hollt og gott að hv. utanríkismálanefnd taki þetta bara til skoðunar, finni eitthvert orðalag sem fólk getur verið sammála um vegna þess að þetta snýst fyrst og fremst um það að við erum að fara í viðræður við Evrópusambandið. Það er grunnur þar til staðar, meira að segja eitthvað af þeim köflum sem var langt komið með, það þarf eflaust að endurskoða. (Forseti hringir.) En við skulum bara leyfa okkur að komast að niðurstöðu í nefndinni og ég hef fulla trú á því að hv. þingmaður muni vinna vel með nefndinni í því.